Áslaug og Kristín Helga tilnefndar til verðlauna í Bologna Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. mars 2018 13:42 Kristín Helga og Áslaug voru heiðraðar í morgun í Norræna húsinu. Norræna húsið
Áslaug Jónsdóttir og Kristín Helga Gunnarsdóttir hafa verið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Tilnefningar voru kynntar af dómnefndinni á bókamessunni í Bologna á Ítalíu í morgun. Kristín Helga er tilnefnd fyrir bók sýna Vertu ósýnilegur - Flóttasaga Ishmaels. Áslaug er tilnefnd fyrir bókina Skrímsli í vanda sem hún skrifaði ásamt Kalle Güettler og Rakel Helmsdal. Forlagið gaf út báðar bækurnar á liðnu ári.Kristín Helga byggir söguna að miklu leyti á raunverulegum atburðum.Vertu ósýnilegur – Flóttasaga Ishmaels er skáldsaga fyrir unglinga og annað fólk sem byggð er á viðtölum, fréttum og heimildum um borgarastyrjöldina í Sýrlandi, afdrif fólks og örlög. „Eitt sinn bjó Ishmael í borg þar sem var líf og fjör alla daga og börn léku sér innan um dulúðuga hnífasala, villiketti og sápugerðarmeistara. Núna er hann fjórtán ára og borgin hans er vígvöllur. Þegar heimilið er rústir einar neyðist hann til að leggja land undir fót og leita skjóls þar sem friður ríkir. En flóttaleiðin er lífshættuleg. Á sama tíma glímir fjölskylda í Kópavogi við það flókna verkefni að fóta sig í nýju landi,“ segir í umsögn um bókina á vef Forlagsins.Svo til allt byggt á raunverulegum atburðum Kristín Helga fékk einmitt Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, í janúar í flokki barna- og unglingabókmennta. „Ég hef sjálf ekki farið í flóttamannabúðir en ég sé Ishmael og hans fólk á hverju götuhorni um alla Evrópu,“ sagði Kristín Helga í viðtali við Fréttablaðið í janúar. Hún var þá nýlent á Keflavíkurflugvelli. „Ég vinn alltaf rannsóknarvinnu við gerð hverrar bókar en aldrei eins og þessarar, þar setti ég mig dálítið í gömlu blaðamannastellingarnar og aflaði gagna og efnis. Tók mörg viðtöl við Sýrlendinga sem búa hér á landi, suma nýkomna og aðra sem hafa verið hér lengi. Annað væri virðingarleysi við efnið. Eiginlega allt sem gerist í sögunni er byggt á raunverulegum atburðum en svo færi ég það vissulega í minn búning.“Bókin er sú níunda í seríunni.Loðna skrímslið ætlar aldrei aftur heimSkrímsli í vanda er níunda bókin um litla og stóra skrímslið. Bækurnar hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og hlotið margs konar verðlaun og viðurkenningar. Áslaug fékk einmitt Íslensku bókmenntaverðlaunin ásamt Rakel og Kalle í janúar í flokki barna- og unglingabókmennta. Í þetta skipti er loðna skrímslið aftur komið í heimsókn til litla skrímslisins. Stóra skrímslið vonar að það staldri stutt við. En það er nú eitthvað annað! Loðna skrímslið segist aldrei ætla heim til sín aftur! Nafn handhafa verðlauna Norðurlandaráðs fyrir barna- og unglingabókmenntir verður tilkynnt í Norsku óperunni þann 30. október 2018 þegar Norðurlandaráð þingar í Ósló. Tekur hann á móti verðlaununum sem nema 350 þúsund dönskum krónum.Nánari upplýsingar um tilnefningar má lesa hér.
Bókmenntir Mest lesið Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni Lífið „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Lífið Hugmyndir að hámhorfi um páskana Bíó og sjónvarp Mótefni gegn afmennskun og kúgun Lífið Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Lífið Settu tærnar upp í loft og fengu knús Menning KK átti salinn - en tónlistin varð útundan Gagnrýni „Dapur yfir því hvernig fór fyrir honum eftir að hann hætti í pólitíkinni“ Lífið Hundrað skvísur blómstruðu saman Lífið „Það sést ekki á mér að ég sé að upplifa þetta“ Lífið Fleiri fréttir Settu tærnar upp í loft og fengu knús „Ekki viss hvort ég sé að skrifa minningargrein eða kveðjubréf“ Sjötugur Haukur Holm kveður fréttamennskuna Raðvændiskaupandi dæmir ekki á Íslandi eftir allt saman Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Edda tryllti gesti óvænt með Ladda Framtíð Mengis óráðin þó eignin sé til sölu Hjálmar H. Ragnarsson er látinn Fá rödd Guðna lánaða Hundrað þúsund bóka múrnum rústað á Bókamarkaðnum Fræjum framtíðar sáð í gamlar bókasafnsbækur Gjöfull trekantur Þessi hljóta tilnefningu til Myndlistarverðlauna Ástin blómstraði á sýningu Tolla Sjá meira