MyFitnessPal fórnarlamb eins stærsta gagnastuldar sögunnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. mars 2018 23:30 Innbrotið átti sér stað í síðasta mánuði. Vísir/Getty
Tölvuþrjótar hafa komist yfir notendanöfn, tölvupóstföng og dulkóðuð lykilorð um 150 milljón notenda MyFitnessPal, heilsuforrits- og vefsíðu í eigu bandaríska íþróttavörufyrirtækisins Under Armour. Svo virðist sem að tölvuþrjótarnir hafi brotist inn í kerfi MyFitnessPal í síðasta mánuði en Under Armour uppgötvaði innbrotið í vikunni.MyFitnessPal er gríðarlega vinsælt smáforrit en með því geta notendur skráð niður líkamsræktaræfingar, fylgst með árangri og sett sér markmið, svo dæmi séu tekin.Under Armour segir að það hafi þegar hafið vinnu við að upplýsa notendur um stuldinn. Í frétt Reuters segirað um einn stærsta gagnastuld sögunnar sé að ræða en sjaldgæft er að tölvuþrjótar komist yfir upplýsingar hjá svo mörgum notendum í einni og sömu árásinni líkt og um er að ræða nú.Tala notenda sem stuldurinn hefur áhrif á bliknar þó í samanburði við stærsta gagnastuld sögunnar, þegar upplýsingum um þrjá milljarða notenda bandarísku vefsíðunnar Yahoo var stolið árið 2016 af tölvuþrjótum.Under Armour, sem keypti MyFitnessPal árið 2015 fyrir 475 milljónir dollara, segir að það starfi nú með sérfræðingum í tölvuöryggi, sem og yfirvöldum, við rannsókn málsins.Hlutabréf í Under Armour lækkuðu um 2,3 prósent eftir að tilkynnt var um stuldinn.
Tengdar fréttir Talið að einn milljarður Yahoo-reikninga hafi verið hakkaður Er þetta í annað skiptið á tveimur árum sem Yahoo verður fyrir tölvuárás af þessu tagi. 14. desember 2016 23:32 Hulunni svipt af framhjáhöldurum Tölvuþrjótar hafa birt gögn um notendur vefsíðunnar Ashley Madison, sem er eins konar vettvangur fyrir fólk sem vill halda fram hjá maka sínum. 19. ágúst 2015 12:24 Mest lesið Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Neytendur „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Talið að einn milljarður Yahoo-reikninga hafi verið hakkaður Er þetta í annað skiptið á tveimur árum sem Yahoo verður fyrir tölvuárás af þessu tagi. 14. desember 2016 23:32
Hulunni svipt af framhjáhöldurum Tölvuþrjótar hafa birt gögn um notendur vefsíðunnar Ashley Madison, sem er eins konar vettvangur fyrir fólk sem vill halda fram hjá maka sínum. 19. ágúst 2015 12:24