Ófært á Mýrum og lokað yfir Öxnadalsheiði Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. febrúar 2018 08:03 Það er hálka víða á landinu í dag.
Þrátt fyrir að allar helstu umferðaræðar til höfuðborgarinnar séu opnar þennan morguninn ættu ökumenn engu að síður að hafa varann á. Á Suðvestur- og Suðurlandi er hálka eða snjóþekja á flestum leiðum og víða skafrenningur. Að sama skapi er sjókoma í uppsveitum Suðurlands og í Hvalfirði. Svipaða sögu er að segja annars staðar á landinu. Þungfært er undir Eyjafjöllum og á Reynisfjalli. Snjóþekja er á flestum vegum á Vesturlandi og víða éljagangur eða snjókoma. Þæfingsfærð á Bröttubrekku og á Útnesvegi en ófært er á Mýrum eftir nóttina, sem og í nágrenni Arnarstapa.Sjá einnig: Miklar líkur á dimmri snjókomu í morgunumferðinniEinnig er snjóþekja eða hálka á flestum leiðum á Vestfjörðum og enn ófært á Klettshálsi og þæfingsfærð í Reykhólasveit og á Þröskuldum. Ástandið er sambærilegt á Norðurlandi þar sem er hálka og snjóþekja á vegum og þæfingsferð í Víkurskarði. Hins vegar er lokað yfir Vatnsskarð og Öxnadalsheiði vegna óveðurs - „en hægt er að fara Þverárfjall og fyrir Tröllaskaga en þar er mjög hvasst og blint á köflum,“ segir Vegagerðin sem býst við að aðstæður á þessum fjallvegum batni um miðjan dag. Á Austurlandi er víða snjóþekja á vegum en á Fjarðarheiði er þungfært og mjög hvasst. Hálka, snjóþekja eða þæfingsfærð er með suðausturströndinni.
Tengdar fréttir Miklar líkur á dimmri snjókomu í morgunumferðinni Varað við lægð sem gengur norðvestur yfir landið á morgun. 13. febrúar 2018 00:01 Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Gul viðvörun vegna skriðuhættu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Sjá meira
Miklar líkur á dimmri snjókomu í morgunumferðinni Varað við lægð sem gengur norðvestur yfir landið á morgun. 13. febrúar 2018 00:01