Einföld lausn á umferðarvandanum Pawel Bartoszek skrifar 19. febrúar 2018 05:54 Helstu andstæðingar borgarlínunnar og almenningssamgangna almennt hafa fært sannfærandi rök gegn nýjum sérakreinum. Þau eru þau að, sé miðað við að vagn aki á sérakrein á 7 mínútna fresti þá standi akreinin auð restina af tímanum. Þetta er auðvitað sóun því á meðan gæti vegbúturinn verið að nýtast undir venjulega, heiðarlega umferð venjulegs, heiðarlegs fólks. „Sóun þarf að uppræta!“ segja hinir hagsýnu. En það þarf reyndar ekki að bíða eftir að ný sóun verði til áður en við getum hafist handa við að uppræta þá sem fyrir er! Þegar er ótrúlega mikið um sóun í samgöngukerfinu sem einfalt væri að losna við með tiltölulega ódýrum aðgerðum.Fyrsta skref: Strætóreinar Byrjum á þeim sérakreinum Strætós sem þegar eru til staðar. Á höfuðborgarsvæð- inu er nefnilega búið að leggja marga, marga metra af strætóakreinum sem nýtast einungis fyrir tóma strætisvagna en gætu nýst almenningi. Ætli þetta séu ekki fimm kílómetrar allt í allt! Það væri sjálfsagt og auðvelt að hleypa fólksbílunum á strætóreinarnar. Við gætum til dæmis sagt að allir bílar með yfir ákveðnum fjölda manns gætu notað þær. Spurningin er bara: Hvaða fjölda á að miða við? Líklegast er best að notast við töluna einn þar sem langflestir ferðast einir í bíl. Ef við myndum krefjast þess að menn þyrftu að vera tveir eða fleiri, þá myndi akreinin nýtast illa og það væri sóun. Einnig: ef við myndum segja að strætóakreinin væri fyrir þá sem væru tveir eða fleiri saman í bíl þá værum við að þvinga fólk til að ferðast saman í bíl og ekki viljum við þvinga fólk.Næsta skref: Stígarnir Reykjavík býr núorðið við sæmilegt net göngu- og hjólastíga. Því miður þá nýtist það aðallega á morgnana þegar fólk er að hjóla í vinnuna og seinni partinn þegar það hjólar heim og svo um helgar. Nýtingin er minni utan þess tíma. Kjörið væri að opna þessa stíga fyrir almenningsumferð, þ.e.a.s. umferð einkabíla. Ein hugmynd er þar borðleggjandi. Allir sem keyrt hafa til Reykjavíkur frá Hafnarfirði hafa væntanlega komið auga á skrýtið grænt mannvirki sem liggur yfir Kringlumýrarbrautinni við botn Fossvogarins. Þetta er svokölluð „göngubrú“. Hún er ætluð fólki sem labbar og hjólar en oft er enginn að nota hana. Hví ekki að minnka þessa sóun og opna brúna fyrir umferð léttari fólksbíla á morgnana? Þannig gætu nemendur HR tekið brúna og keyrt svo eftir hjóla- og göngustígnum sem lagður hefur verið Fossvogsmegin Öskjuhlíðar fyrir milljónir króna en stendur oft auður. Þeir gætu keyrt alla leið að skólanum og jafnvel lagt á sjálfri Ylströndinni, sem oftast er tóm..Tillaga að auknu umferðarflæðiLokaskref: Flugvöllurinn En af hverju að stoppa við HR? Af hverju ekki að halda áfram? Stóra tækifærið við lausn umferðarvandans felst nefnilega ekki í því að bæta við örlitlum akreinastúfum á löngu sprungnum stofnbrautum. Í raun blasir lausnin við. Í hjarta Reykjavíkur er risastórt umferðarmannvirki sem er í raunverulegri notkun svona fjóra tíma á dag en stendur autt restina af tímanum. Já, við erum að tala um flugvöllinn. Miklabrautin og Kringlumýrarbrautin eru báðar sprungnar. Norður-suður flugbrautina í Vatnsmýrinni mætti nota til að létta af álaginu. Hún dugar því miður ekki alla leið en það er leysanlegt með litlum tilkostnaði. Það þyrfti bara smá vegbút inn á flugbrautina frá Nauthólsvík annars vegar og Miklubraut hins vegar. Raunar þyrfti ekki einu sinni að fara út á flugbrautina. Samhliða flugbrautinni liggur nefnilega þjónustubraut og bílarnir gætu nýtt hana. Vissulega gætu flugvélar verið að lenda á austur-vestur flugbraut, en það mætti leysa það vandamál með einföldum umferðarljósum og hliðum við þverunina. Þetta hefur þegar verið gert á Gíbraltar, með góðum árangri. Auðvitað gæti einhver leiðindapúki bent á að þessi lausn væri ekki sérstaklega raunhæf. Þótt farþega- eða sjúkraflugvélar noti völlinn ekki hverja mínútu þurfi brautirnar samt að vera til taks öllum stundum, annars geti orðið tafir, til dæmis vegna bílslyss, og slíkt gæti dregið mjög úr notagildi flugvallarins. Þetta eru reyndar ágætisrök að mörgu leyti. Spurning hvort þau eigi ekki líka við þegar kemur að öðrum umferðarmannvirkjum. Eins og til dæmis forgangsakreinum fyrir strætó Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pawel Bartoszek Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar