Með 106 pakkningar af kókaíni innvortis Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. janúar 2018 08:59 Lögreglumaður fylgist hér með gangi mála í Leifsstöð. Vísir/Eyþór
Belgískur karlmaður, sem lögreglan segir hafa verið „mikið fatlaðan,“ var stöðvaður í Leifsstöð á síðastliðnu ári með rúmlega eitt kíló af kókaíni innvortis. Maðurinn hafði hlutað kílóið í 106 pakkningar og er þetta mesta magn sem fundist hefur í einum einstaklingi hingað til. Þetta er meðal þess sem kemur fram í uppgjöri lögreglunnar á Suðurnesjum um fíkniefnamál sem komu upp í flugstöðinni á síðasta ári. Í þeim 46 fíkniefnamálum sem upp komu í flugstöð Leifs Eiríkssonar á síðastliðnu ári lagði rannsóknardeild lögreglunnar hald á rúmlega 42 kíló af hörðum fíkniefnum. Þar af voru rúm 35.000 grömm af kókaíni, tæp 7.000 grömm af amfetamíni, 196 grömm af metamfetamíni og 61 gramm af ecstasy (MDMA). Auk þessa voru haldlögð rúmlega 240 grömm af hassi. Undirstrikað er í skeyti lögreglunnar að um bráðabirgðatölur er að ræða, sem kunna að taka smávægilegum breytingum þegar endanlegt heildaruppgjör ársins liggur fyrir.300 kíló á götunni „Styrkur haldlagðra efna í innvortis málum er yfirleitt mjög mikill eða um 90%. Styrkur í haldlögðum neysluskömmtum á götunni er á bilinu 7 – 15%. Því má ætla að margfalda megi ofangreind 42 kíló með 7 eða 8 sem gerir þá rúmlega 300 kíló af hörðum fíkniefnum á götum úti,“ útskýrir lögreglan. Langflest þessara mála segir lögreglan eiga upptök sín hjá tollvörðum sem hafa með höndum „mjög virkt og skipulegt eftirlit í flugstöðinni,“ eins og það er orðað. „Sú leið að reyna að smygla fíkniefnum þá leiðina verður því að teljast mjög áhættusöm fyrir þá sem það reyna.“ Þá minnir lögreglan á á afdrif rúmlega tvítugs íslensks karlmanns sem kom með 42 pakkningar innvortis til landsins í október. „Ein pakkningin tók að leka og var hann fluttur lífshættulega veikur með hraði á Landspítalann þar sem hann undirgekkst rúmlega 3ja klukkustunda skurðaðgerð,“ segir í skeytinu.
Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi Sjá meira