Kimi Raikkonen varð fjórði í keppninni á Ferrari og lyfti sér þar með upp í fjórða sætið í heimsmeistarakeppni ökumanna. Finninn komst þá upp fyrir Daniel Ricciardo sem féll úr leik á Red Bull bílnum.
Renault liðið bætti stöðu sína í keppni bílasmiða og endaði í sjötta sæti með sjötta sæti Nico Hulkenberg. Renault komst upp fyrir Toro Rosso sem ekki tókst að ná í stig í keppninni. Á þessum sætum munar tugum milljóna króna og því mikilvægt fyrir liðin að reyna að halda sínum sætum.
Ræsingin var með rólegasta móti hjá fremstu mönnum. Engar hrókeringar urðu á milli topp ökumannanna. Kevin Magnussen á Haas missti stjórn á bílnum í kjölfar ræsingarinnar og var orðinn síðastur strax í upphafi keppninnar. Nico Hulkenberg á Renault fékk fimm sekúndna refsingu fyrir að stytta sér leið á fyrsta hring í baráttu við Sergio Perez á Force India.
Baráttan á upphafshringjum keppninnar var hörðust á milli Lance Stroll á Williams og Romain Grosjean á Haas. Stroll fór svo inn á þjónustuhlé á 12. hring og fékk ofur-mjúk dekk undir.
Fernando Alonso á McLaren og Felipe Massa á Williams voru duglegir að berjast á brautinni í Abú Dabí. Kempurnar hafa eflaust haft gaman af því að berjast á brautinni í síðasta sinn í Formúlu 1. Keppnin í dag var síðasta Formúlu 1 keppni Felipe Massa.

Hamilton tók við forystuhlutverkinu í keppninni eftir þjónustuhlé Bottas. Hamilton var ekkert á því að taka þjónustuhlé alveg strax. Hann kom in þremur hringjum á eftir Bottas. Þrátt fyrir að Hamilton hefði gefið allt í að reyna að komast fram úr Bottas þá hélt Finninn forystunni.
Hamilton sótti á Bottas eftir að báðir höfðu tekið þjónustuhlé. Hamilton gerði svo mistök á leið inní eina beygjuna og missti aðeins takið á Bottas. Hann var nokkra hringi að vinna til baka tímann sem mistökin kostuðu hann.
Carlos Sainz féll úr leik á 32. hring þegar hann var að koma út af þjónustusvæðinu. Vinstra framdekkið hafði ekki verið fest undir bílinn og því ómögulegt annað en að leggja honum við fyrsta tækifæri.
Alonso fór að velta fyrir sér hvort hann gæti aðstoðað Stoffel Vandoorne, liðsfélaga sinn hjá McLaren við að komast upp í stigasæti. Alonso var þá sjálfur í níunda en Vandoorne var í 12. sæti.
Tímabilið leið undir lok undir stöðugri forystu Bottas sem var þar með orðinn stigahæsti ökumaðurinn í síðustu þremur keppnum. Hamilton mistókst aftur að vinna keppni eftir að hann hefur tryggt sér heimsmeistaratitilinn.