Af áhuga sprettur árangur Aron Valgeir Gunnlaugsson skrifar 15. október 2017 09:00 Eins og fram hefur komið á undanförnum dögum, í aðsendum greinum aðildarfélaga LÍS – Landssamtaka íslenskra stúdenta, hefur undirfjármögnun háskólanna víðtækari áhrif en bara á nemendur. Viðvarandi ástand hefur áhrif á komandi kynslóðir og það hvernig við nálgumst vandamál sem steðja að mannkyninu í komandi framtíð. Það eru og munu alltaf vera vandamál sem samfélög þurfa að takast á við en með góða menntun í farteskinu erum við betur sett til að leysa þau vandamál. Seint verður ofsagt að mannfólkið er eins fjölbreytilegt og það er margt, að baki hverjum einstaklingi eru mismunandi aðstæður, hagsmunir og væntingar. Áhugamál hvers og eins eru mismunandi en ævi okkar tekur mið af forsendunum, markmiðið er þó í flestum tilvikum að reyna að vera besta útgáfan af sjálfum sér. Til þess að ná því markmiði leggja einstaklingar á sig mikla vinnu, hvort sem það er í námi, leik eða starfi. Háskólarnir sjö sem við Íslendingar höfum úr að velja eru fjölbreyttir, með mismunandi námsframboð, kennsluaðferðir, staðsetningu og undirstöður. Sameiginleg markmið í starfi skólanna er að auka þekkingu nemenda sinna, hlúa að þeim, stuðla að rannsóknum og undirbúa einstaklinga fyrir atvinnulífið. Þegar valinn er háskóli, liggja þessir þættir, ásamt fleirum, til grundvallar þeirri ákvörðun. Einstaklingar velja sér þann skóla sem uppfyllir þeirra væntingar og veitir þeim þá leiðsögn sem þeir þurfa. Með undirfjármögnun háskólakerfisins búum við til ný vandamál, sem hægt er að koma í veg fyrir. Hætt er við að námsframboð verði einsleitara, dregið hefur úr rannsóknum, þjónusta við nemendur hefur minnkað að verulegu leyti og mun sú þróun halda áfram að öllu óbreyttu. Þrátt fyrir niðurskurð hafa háskólarnir sinnt hlutverki sínu af bestu getu og ber að hrósa stjórnendum skólanna fyrir það. Róðurinn hefur þyngst síðastliðin ár og er raunveruleg hætta er á að þeir muni ekki geta uppfyllt skyldur sínar og staðist þær væntingar sem nemendur hafa til þeirra. Hlutverk þeirra teygir sig svo út í samfélagið, rannsóknarvinnan sem unnin er innan háskólanna er ekki einungis ætluð til að auka þekkingu nemendanna. Hlutverk þeirra er að auka þekkingu samfélagsins í heild sinni. Ef skólum er fækkað er dregið úr fjölbreytileikanum og hætt er við allir verði „steyptir í sama mótið“. Með því skerðist frelsi einstaklinga til þess að fylgja eftir draumum sínum og aukin pressa verður á að velja nám eftir því hvað þykir „praktískt“. Frekari einsleitni getur verið hvati fyrir nemendur til þess að leita út fyrir landsteinana í nám. Þannig getur dýrmæt þekking og reynsla gæti tapast skili nemendur sér ekki til baka. Þegar ég stóð frammi fyrir því að velja skóla lágu þessar forsendur til grundvallar. Ég gat valið um nám sem vakti áhuga minn og löngun til að sinna því vel. Ég vil að komandi kynslóðir hafi tækifæri til þess að velja sér menntun út frá forsendum sínum. Að háskólarnir geti haldið áfram að sinna sínu hlutverki. Því hef ég ákveðið, líkt og kollegar mínir, að kjósa menntun 28. október og vil hvetja þig til að gera slíkt hið sama.Greinin er hluti af átaki Nemendafélags Háskólans á Bifröst í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun Tengdar fréttir Kjóstu menntun 28. október Nú liggur fyrir að kosið verður á ný til Alþingis, 364 dögum eftir síðustu kosningar. Hagsmunahreyfingar stúdenta telja nauðsynlegt að hafa málefni eins og fjármögnun háskólastigsins í forgrunni þegar kemur að vali á fulltrúum á þingi og umræðum um nýja ríkisstjórn. 2. október 2017 09:00 Mennt er máttur Menntun eykur þróun og nýsköpun og býr þannig til fleiri tækifæri og starfsmöguleika. Menntun eykur gagnrýna hugsun og hjálpar einstaklingum að finna hvar áhugasvið þeirra liggur. 12. október 2017 09:42 Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif. 4. október 2017 09:00 Sagan um Sigga Það var mánudagsmorgun þegar söguhetjan okkar, Siggi, gekk um háskólasvæðið á leið í sinn fyrsta tíma sem háskólanemi. 7. október 2017 09:00 Þú færð helmingi minna en á Norðurlöndunum Ávinningur háskólanáms er mikill fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann hefur bein áhrif á efnahag, gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga, samfélaginu til bóta. 10. október 2017 09:00 Undirfjármögnun kemur í veg fyrir sérhæfingu nemenda Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til þess að sérhæfa sig á hinum ýmsu námsleiðum en ekki aðeins brot af því sem þeim þeir hafa hug á að sérhæfa sig í. 6. október 2017 09:00 Landsbyggðin án háskóla? Í síðasta mánuði og í raun allt síðasta árið hefur skólinn minn verið að halda upp á þrjátíu ára afmælið sitt. Á tímamótum sem þessum er algengt að fara í sjálfsskoðun, við þekkjum þetta öll þegar við höfum náð ákveðnum áföngum í lífi okkar, aldur, atburður, útskrift eða ákveðin upplifun. 9. október 2017 09:49 Aftur til fortíðar - undirfjármögnun hægir á framförum Ætli hinn almenni borgari átti sig á mikilvægi málefnisins? Það er undir okkur öllum komið að berjast fyrir réttindum sem eru jafnvel talin sjálfsögð, en eru það ekki. 11. október 2017 12:15 Skiptir þessi háskóli máli? Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda. 3. október 2017 09:00 Hugvísindi í hættu Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings 5. október 2017 09:39 Eru verðmætin fólgin í náttúrunni? Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða. 8. október 2017 09:00 Hvar viljum við standa í fjórðu iðnbyltingunni? Háskólar á Íslandi hafa verið undirfjármagnaðir í alltof langan tíma. Hagsmunasamtök og rektorar háskólanna hafa reynt að skapa umræðu um vandamálið undir myllumerkinu #HáskólaríHættu og nú #KjóstuMenntun. 13. október 2017 09:00 Mest lesið Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Sjá meira
Eins og fram hefur komið á undanförnum dögum, í aðsendum greinum aðildarfélaga LÍS – Landssamtaka íslenskra stúdenta, hefur undirfjármögnun háskólanna víðtækari áhrif en bara á nemendur. Viðvarandi ástand hefur áhrif á komandi kynslóðir og það hvernig við nálgumst vandamál sem steðja að mannkyninu í komandi framtíð. Það eru og munu alltaf vera vandamál sem samfélög þurfa að takast á við en með góða menntun í farteskinu erum við betur sett til að leysa þau vandamál. Seint verður ofsagt að mannfólkið er eins fjölbreytilegt og það er margt, að baki hverjum einstaklingi eru mismunandi aðstæður, hagsmunir og væntingar. Áhugamál hvers og eins eru mismunandi en ævi okkar tekur mið af forsendunum, markmiðið er þó í flestum tilvikum að reyna að vera besta útgáfan af sjálfum sér. Til þess að ná því markmiði leggja einstaklingar á sig mikla vinnu, hvort sem það er í námi, leik eða starfi. Háskólarnir sjö sem við Íslendingar höfum úr að velja eru fjölbreyttir, með mismunandi námsframboð, kennsluaðferðir, staðsetningu og undirstöður. Sameiginleg markmið í starfi skólanna er að auka þekkingu nemenda sinna, hlúa að þeim, stuðla að rannsóknum og undirbúa einstaklinga fyrir atvinnulífið. Þegar valinn er háskóli, liggja þessir þættir, ásamt fleirum, til grundvallar þeirri ákvörðun. Einstaklingar velja sér þann skóla sem uppfyllir þeirra væntingar og veitir þeim þá leiðsögn sem þeir þurfa. Með undirfjármögnun háskólakerfisins búum við til ný vandamál, sem hægt er að koma í veg fyrir. Hætt er við að námsframboð verði einsleitara, dregið hefur úr rannsóknum, þjónusta við nemendur hefur minnkað að verulegu leyti og mun sú þróun halda áfram að öllu óbreyttu. Þrátt fyrir niðurskurð hafa háskólarnir sinnt hlutverki sínu af bestu getu og ber að hrósa stjórnendum skólanna fyrir það. Róðurinn hefur þyngst síðastliðin ár og er raunveruleg hætta er á að þeir muni ekki geta uppfyllt skyldur sínar og staðist þær væntingar sem nemendur hafa til þeirra. Hlutverk þeirra teygir sig svo út í samfélagið, rannsóknarvinnan sem unnin er innan háskólanna er ekki einungis ætluð til að auka þekkingu nemendanna. Hlutverk þeirra er að auka þekkingu samfélagsins í heild sinni. Ef skólum er fækkað er dregið úr fjölbreytileikanum og hætt er við allir verði „steyptir í sama mótið“. Með því skerðist frelsi einstaklinga til þess að fylgja eftir draumum sínum og aukin pressa verður á að velja nám eftir því hvað þykir „praktískt“. Frekari einsleitni getur verið hvati fyrir nemendur til þess að leita út fyrir landsteinana í nám. Þannig getur dýrmæt þekking og reynsla gæti tapast skili nemendur sér ekki til baka. Þegar ég stóð frammi fyrir því að velja skóla lágu þessar forsendur til grundvallar. Ég gat valið um nám sem vakti áhuga minn og löngun til að sinna því vel. Ég vil að komandi kynslóðir hafi tækifæri til þess að velja sér menntun út frá forsendum sínum. Að háskólarnir geti haldið áfram að sinna sínu hlutverki. Því hef ég ákveðið, líkt og kollegar mínir, að kjósa menntun 28. október og vil hvetja þig til að gera slíkt hið sama.Greinin er hluti af átaki Nemendafélags Háskólans á Bifröst í samstarfi við LÍS - Landssamtök íslenskra stúdenta vegna fjármögnunar háskólastigsins í aðdraganda Alþingiskosninga 2017. Kassamerki átaksins er #kjóstumenntun.
Kjóstu menntun 28. október Nú liggur fyrir að kosið verður á ný til Alþingis, 364 dögum eftir síðustu kosningar. Hagsmunahreyfingar stúdenta telja nauðsynlegt að hafa málefni eins og fjármögnun háskólastigsins í forgrunni þegar kemur að vali á fulltrúum á þingi og umræðum um nýja ríkisstjórn. 2. október 2017 09:00
Mennt er máttur Menntun eykur þróun og nýsköpun og býr þannig til fleiri tækifæri og starfsmöguleika. Menntun eykur gagnrýna hugsun og hjálpar einstaklingum að finna hvar áhugasvið þeirra liggur. 12. október 2017 09:42
Mannauður er undirstaða heilbrigðisþjónustu Undanfarin tvö ár hef ég setið í Stúdentaráði og þar fengið að kynnast mikilvægi hagsmunabaráttu og þess að nemendur hafi rödd. Það hefur verið magnað að fylgjast með hverju er hægt að hrinda í framkvæmd og hvað er hægt að hafa mikil áhrif. 4. október 2017 09:00
Sagan um Sigga Það var mánudagsmorgun þegar söguhetjan okkar, Siggi, gekk um háskólasvæðið á leið í sinn fyrsta tíma sem háskólanemi. 7. október 2017 09:00
Þú færð helmingi minna en á Norðurlöndunum Ávinningur háskólanáms er mikill fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Hann hefur bein áhrif á efnahag, gildi, þekkingu og viðhorf einstaklinga, samfélaginu til bóta. 10. október 2017 09:00
Undirfjármögnun kemur í veg fyrir sérhæfingu nemenda Mikilvægt er að nemendur fái tækifæri til þess að sérhæfa sig á hinum ýmsu námsleiðum en ekki aðeins brot af því sem þeim þeir hafa hug á að sérhæfa sig í. 6. október 2017 09:00
Landsbyggðin án háskóla? Í síðasta mánuði og í raun allt síðasta árið hefur skólinn minn verið að halda upp á þrjátíu ára afmælið sitt. Á tímamótum sem þessum er algengt að fara í sjálfsskoðun, við þekkjum þetta öll þegar við höfum náð ákveðnum áföngum í lífi okkar, aldur, atburður, útskrift eða ákveðin upplifun. 9. október 2017 09:49
Aftur til fortíðar - undirfjármögnun hægir á framförum Ætli hinn almenni borgari átti sig á mikilvægi málefnisins? Það er undir okkur öllum komið að berjast fyrir réttindum sem eru jafnvel talin sjálfsögð, en eru það ekki. 11. október 2017 12:15
Skiptir þessi háskóli máli? Nú rúmum 100 árum eftir stofnun hefur starfsemi Háskóla Íslands vaxið og dafnað eins og sjá má á auknum nemendafjölda. 3. október 2017 09:00
Hugvísindi í hættu Háskóli Íslands er í fyrsta skipti í hópi 250 bestu háskóla heims á sviði hugvísinda samkvæmt nýjum lista Times Higher Education University Rankings 5. október 2017 09:39
Eru verðmætin fólgin í náttúrunni? Á næstum árum og áratugum munu eiga sér stað miklar breytingar á náttúrunni vegna hlýnunar loftslags sem gerist nú á fordæmalausum hraða. 8. október 2017 09:00
Hvar viljum við standa í fjórðu iðnbyltingunni? Háskólar á Íslandi hafa verið undirfjármagnaðir í alltof langan tíma. Hagsmunasamtök og rektorar háskólanna hafa reynt að skapa umræðu um vandamálið undir myllumerkinu #HáskólaríHættu og nú #KjóstuMenntun. 13. október 2017 09:00
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun