Því er nú allt að leysast upp í abstrakt Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 17. október 2017 10:30 Guðmundur segir sýningargesti jafnan fara brosandi út. "Þeim finnst titillinn nokkuð sniðugur og ýmislegt sem fyrir augun ber.“ Vísir/Stefán
Skrítnir karlmenn sem ráfa um í einhvers konar tómi birtast í klippimyndum Guðmundar Thoroddsen á sýningunni Tittlingaskítur í Hverfisgalleríi á Hverfisgötu 4 í Reykjavík. Þetta er hans fyrsta einkasýning og þar er hann líka með málverk og leirskúlptúra. Inntur eftir hvað fyrir honum vaki svarar hann: „Ja, síðustu ár hef ég unnið mikið með karla og feðraveldið í minni list, en á húmorískan hátt. Mín afstaða er svolítið ráðvillt í þeirra garð, því ég er að hæðast að þeim. Líka svolítið að gagnrýna kerfið en um leið að upphefja það með því að fjalla um það.“ Guðmundur viðurkennir að afstaða hans sé svolítið tvíbent. „Nú er ég karl sjálfur, á miðjum aldri og get ekkert að því gert. Mér finnst karlar dálítið frekir og leiðinlegir en samt eru ýmis mikilmennin sem maður heldur upp á. Því er nú allt að leysast upp í abstrakt, þó að formin ýi að einhverju sem lesa má út úr þeim sem gagnrýni.“
Menning Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira