Leituðu í ljóð þjóðskálda Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 16. september 2017 14:15 Björk, Hafdís, Grímur og Svanur við höfnina.
Eitthvað fallegt nefnast tónleikar Quartetto a muoversi í Norðurljósum í Hörpu á morgun, 17. september, klukkan 17. Einungis íslensk tónlist er á efnisskránni, þar á meðal frumflutningur verka eftir Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Ingibjörgu Azimu. Verk Hróðmars nefnist Nokkrar misjafnlega almennar hugmyndir um dauðann. Það var samið við samnefnt ljóð Gyrðis Elíassonar úr ljóðabókinni Nokkur almenn orð um kulnun sólar og Næturljóð í d-moll úr ljóðabókinni Hér vex enginn sítrónuviður eftir sama höfund. Ingibjörg samdi þrjú lög við ljóð Snorra Hjartarsonar. Kvartettinn skipa þau Björk Níelsdóttir sópran, Hafdís Vigfúsdóttir flautuleikari, Grímur Helgason klarínettuleikari og Svanur Vilbergsson gítarleikari. Auk fyrrnefnds frumflutnings verður á tónleikunum tónlist eftir Elínu Gunnlaugsdóttur, Svein Lúðvík Björnsson, Þorkel Sigurbjörnsson og Oliver Kentish.
Mest lesið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Lífið samstarf Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira