Fótbolti

Hörður Björgvin: Væri ekki verra að skora í 1-0 sigurleik

Leikmenn Íslands hrúgast ofan á Hörð Björgvin eftir að hann skoraði sigurmarkið gegn Króatíu
Leikmenn Íslands hrúgast ofan á Hörð Björgvin eftir að hann skoraði sigurmarkið gegn Króatíu Vísir/Ernir
Hörður Björgvin Magnússon hefur verið hetja íslenska landsliðsins í síðustu tveimur leikjum þess. Hann skoraði dramatískt sigurmark gegn Króatíu í júní og tryggði Íslandi þar að auki sigur með glæsilegu marki úr aukaspyrnu í æfingaleik gegn Írlandi.

„Þetta verður skemmtilegur leikur en erfiður,“ sagði Hörður í samtali við Óskar Ófeig Jónsson, blaðamann Vísis, á æfingu landsliðsins í gær. „Finnarnir gerðu okkur síðast lífið leitt en við náðum sem betur fer að snúa því við á lokakaflanum,“ sagði hann enn fremur og vísaði til 3-2 sigurs Íslendinga á Finnum fyrir ári síðan.

Hann segist ávallt bjartsýnn á að fá tækifærið með íslenska landsliðinu. „Þegar það kemur verður maður að nýta það eins vel og maður getur. Ég lagði mjög hart að mér í sumar. Það er svo heldur ekki verra að fá tvö sigurmörk í röð. Vonandi heldur það áfram og við vinnum þennan leik 1-0.“

Hörður Björgvin hefur ekkert fengið að spila í fyrstu fimm deildarleikjum Bristol City í ensku B-deildinni í haust, en spilar þess í stað í deildarbikarnum. Hann var nálægt því að ganga til liðs við Rostov í Rússlandi á lánssamningi í gær en það gekk ekki í gegn, líkt og Fótbolti.net greindi frá.

„Ég á tvö ár eftir af samningi mínum við Bristol og er því rólegur. Ég ætla að einbeita mér að landsliðinu og í bili er allt annað bara aukaefni,“ sagði Hörður Björgvin á æfingunni í gær.

Arnar Björnsson ræddi einnig við Hörð Björgvin í gær og má sjá viðtal hans hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Kári: Verðum að vera mættir

Kári Árnason segir að Finnar séu betra lið en taflan segir til um og býst við erfiðum leik á laugardaginn.

Gylfi: Lítið pláss fyrir mistök

Íslenska fótboltalandsliðið undirbýr sig nú af kappi fyrir leikinn mikilvæga gegn Finnum í Tampere í undankeppni HM á laugardaginn.

Sverrir Ingi: Rússneskan verður klár næsta sumar

Sverrir Ingi Ingason segist vera ánægður með byrjun sína hjá rússneska félaginu Rostov. Hann segir einnig að það sé algjörlega undir þjálfaranum komið hvort hann muni byrja inná gegn Finnum á laugardaginn.

Emil fékk hláturskast: Verður hörkubarátta

Emil Hallfreðsson telur að íslenska liðið eigi góða möguleika gegn því finnska á laugardaginn en hann telur það þó vera mikilvægt að muna eftir fyrri leiknum í Laugardalnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×