Stefnir í votviðrasama viku Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 3. september 2017 08:34 Það er eflaust best að draga fram pollagallann og regnhlífarnar. Vísir/Ernir
Það stefnir í votviðrasama viku á landinu með ríkjandi suðlægum áttum, þó vindur snúist heldur til norðanáttár um tíma á norðvestanverðu landinu. Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Í dag er þó útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt og súld eða rigningu af og til, en útlit er fyrir að hann hangi að mestu þurr norðaustanlands fram eftir degi. Þar gæti hiti farið í 16 til 18 gráður. Í kvöld og nótt hvessir víða og bætir í rigninguna við sunnan og austanlands, það má jafnvel búast við nokkuð þéttri rigningu suðaustantil á morgun, en á þriðjudag er útlit fyrir meiri skúraleiðingar í flestum landshlutum. Áfram er útlit fyrir votviðri seinnipart vikunnar, og yfirleitt milt veður.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ mánudag: Suðaustan og síðar austan 5-13 m/s en norðaustlægari á Vestfjörðum. Rigning, talsverð suðaustanlands en úrkomuminna á Norðurlandi, einkum síðdegis. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast á Norðurlandi.Á þriðjudag: Austlæg átt, 3-8 m/s en norðaustan 5-13 á Vestfjörðum og Ströndum. Rigning á Suðausturlandi og Austfjörðum annars víða skúrir en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 8 til 14 stig.Á miðvikudag: Norðvestan og vestan 3-8 með skúraleiðingum með norðourströndinni annars úrkoulítið, en bjartviðri á suðaustan og austanverðu landinu. Hiti frá 7 stigum við norðurströndina, upp í 14 stig suðaustanlands.Á fimmtudag: Austlæg átt, 3-10 m/s, hvassast við vesturströndina. Skýjað víðast hvar og rigning en þurrt að kalla norðanlands fram á kvöld. Hiti 7 til 13 stig.Á föstudag: Norðan 5-13 m/s, hvassast V-til. Skýjað og dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti breytist lítið.Á laugardag: Útlit fyrir vaxandi norðan og norðaustanátt með vætu í flestum landshlutum og heldur hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Fleiri fréttir Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira