Haustspá Siggu Kling - Meyjan: Skalt alls ekki sýna óöryggi eða undirgefni Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2017 09:00
Elsku magnaða Meyjan mín, mikið er ég þakklát fyrir að þú sért til, það ert þú sem svo sannarlega skrifar söguna fyrir okkur. Undir einbeittu yfirborði þínu býr svo margbreytilegur andi sem þú sýnir ekki mörgum. Margir í kringum þig halda að þú sért svona og hinsegin en fæstir vita hvernig þú ert í raun. Ég bið þig svo sannarlega að skoða að ef þú ert þreytt á vinnunni og búin að bíða lengi, lengi eftir viðurkenningu þá skaltu athuga að sú vinna eða skóli er trúlega alls ekki þinn vænsti kostur. Það er svo mikilvægt að þú skiljir hvar og við hvern þú ert tengd því sjálfstæði þitt er það sem skiptir öllu máli. Þú ert svo góð í að hjálpa öðrum að ná árangri og slítur þér út við það, og það er bara allt í lagi ef þér líður vel með það. En þegar þér finnst þú vera innikróuð og sífellt á biðlista eftir viðurkenningu þá ljómar þú alls ekki. Og í ástamálum skiptir öryggið þig svo rosalega miklu því ef þú trúir á maka þinn þá er geislandi framtíð í höfn. Svo þú skalt alls ekki sýna óöryggi eða undirgefni í neinu sem tengist ástinni. Þegar þú mætir á svæðið vita allir að þú ert komin. Um leið og þú skilur að þú hefur þennan x-faktor þá halda þér engin bönd. Að binda Meyju niður ætti að vera lögbrot! Flestar af mínum fyrirmyndum eru í Meyjunni og þegar þú skilur að þú ert þín eigin fyrirmynd þá sérðu ljósið sem þú ert að bíða eftir. Þú stendur á merkilegum tímamótum nákvæmlega núna og sú orka endist í þrjá mánuði. Þegar þú lítur yfir þennan tíma í desember þá getur þú séð skýrt hvernig árið þitt verður. Það byrjar á afmælisdegi þínum 2017 og því lýkur á afmælisdegi þínum árið 2018. Svo núna eru áramót og þá er sérstakur tími sem gefur til kynna hvað við ætlum ekki að taka inn í nýja árið, tími til að velja nýjar áskoranir til að halda lífsfjörinu gangandi. Þú ert svo sannarlega núna undir regnboganum svo þú þarft að hafa á hreinu hvers þú óskar þér. Máttur óskarinnar er mikill alveg eins og fyrir okkur öll sem strengjum áramótaheit, en þín áramót eru núna og þitt heit því líka. Setningin þín er: Þetta er minn tími – Feeling Good (Michael Bublé)Frægar Meyjur: Ragna Lóa Stefánsdóttir íþróttakona, Manuela Ósk fyrirsæta, Björk Eiðsdóttir ritstýra, Andrea fatalistamaður, Claudia Schiffer fyrirsæta, Edda Björgvinsdóttir leikkona, Eva Dögg Sigurgeirsdóttir, ritstjóri og tískugúrú, Herdís Jóhannesdóttir athafnakona, Beyoncé Knowles söngkona, Gylfi Þór Sigurðsson, Eiður Smári Guðjohnsen, Sigrún Ósk Kristjánsdóttir sjónvarpskona, Annie Mist crossfittari, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður, Selma Ragnars, fatahönnuður Íslands, Lalli Johns góðkunningi lögreglunnar, Sema Erla Serdar, baráttukona, Eydís Ósk hjúkrunarkona.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Fleiri fréttir Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Sjá meira