Kristín endurráðin sem leikhússtjóri Borgarleikhússins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. ágúst 2017 11:49 Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. vísir/stefán
Stjórn Leikfélags Reykjavíkur hefur endurráðið Kristínu Eysteinsdóttur í stöðu leikhússtjóra Borgarleikhússins til 31. júlí árið 2021, en ákvörðun um þetta var tekin á fundi stjórnarinnar í sumar að því er segir í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Leikhússtjóri heyrir undir stjórn LR og starfar í umboði hennar, til fjögurra ára í senn. Leikhússtjóri fer með yfirstjórn og yfirumsjón með öllum leikhúsrekstri í Borgarleikhúsinu. Hann ber listræna ábyrgð á starfseminni og rekstrarlega ábyrgð gagnvart stjórn LR. Kristín hefur verið Borgarleikhússtjóri frá árinu 2014, en hún var ráðin í febrúar það ár. Áður starfaði Kristín sem leikstjóri og stýrði m.a. sýningunum Þeim Ljóta, Rústað, Dúfunum, Fólkinu í kjallaranum og Svari við bréfi Helgu. Kristín lauk meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths, University of London árið 2007 en áður hafði hún lokið BA-námi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla árið 2002. „Það er mikill heiður að njóta trausts til að sitja áfram í þessu frábæra starfi. Maður staldrar við á svona tímamótum því þessu starfi fylgir auðvitað talsvert álag en niðurstaðan varð sú að ég gæti ekki fundið starf sem væri skemmtilegra, meira gefandi og þar sem ég væri umkringd jafn dásamlegu fólki og hér í Borgarleikhúsinu,” segir Kristín Eysteinsdóttir í tilkynningunni um áframhaldandi ráðningu sína í starf leikhússtjóra Borgarleikhússins. „Þetta er búið að vera stórkostlegt ferðlag hingað til. Mjög oft ansi krefjandi en síðan er uppskeran svo einlæglega þess virði þegar maður sér sýningar lifna við á sviðinu sem rata alla leið inn í hjörtu áhorfenda og hafa eitthvað um það að segja hvernig við skiljum samfélagið okkar,“ segir hún um tíma sinn í leikhúsinu hingað til. „Ég er full tilhlökkunar og áhuga á að reyna að gera enn betur. Ýta okkur áfram fram á ystu nöf þess sem hægt er hvað varðar þau skilaboð sem við viljum miðla með verkunum okkar og þeim listræna og faglega metnaði sem við getum sett í að fara með hverja sýningu alla leið. Það er sá hluti starfsins míns sem ég elska mest,“ segir Kristín um framtíðina. Eggert Benedikt Guðmundsson, stjórnarformaður Leikfélags Reykjavíkur, fagnar ákvörðuninni. „Borgarleikhúsið hefur blómstrað undir listrænni forystu Kristínar Eysteinsdóttur undanfarin ár. Stjórn Leikfélags Reykjavíkur er því afar ánægð með að Kristín hafi samþykkt að framlengja ráðningarsamning sinn til fjögurra ára,” segir Eggert Benedikt. „Þær áætlanir sem Kristín hefur lagt fram og unnið er eftir benda til að seinni hálfleikur verði ekki síður áhugaverður, metnaðarfullur og skemmtilegur en sá fyrri. Leikhúsgestir, starfsfólk og aðrir sem leikhúsinu tengjast munu áreiðanlega fagna með okkur.“
Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira