Hvítt Hjörleyfi Benedikt Bóas skrifar 17. ágúst 2017 09:00 Hjörleifur Guttormsson er maðurinn. Ég væri til í að hafa hann sem nágranna. Ég ætla að efast um að það séu mikil vandræði í kringum húsið hans í Skuggahverfinu. Glæsileg mynd af sjómanni, sem fór ekki réttar leiðir í stjórnsýslunni, var fjarlægð því hann einfaldlega meikaði hana ekki. Og ekki nágranni hans heldur. Og Hjörleifur kann á kerfið. Sendir réttu póstana á rétta fólkið og viti menn. Hann fékk bara heilan húsvegg málaðan hvítan og enginn skilur neitt í neinu. Stóra Hjörleifsmálið er auðvitað með ólíkindum. Það eru bara alvöru menn sem geta þetta sem hann gerði. Ég ber virðingu fyrir því. Ekki get ég sent borginni tölvupóst og fengið málningu skvett á hús sem mér finnst ljót. Það er ótal margt sem ég skil ekki í þessu máli en að hafa mynd af sjómanni á Sjávarútvegshúsinu hljómar bara svo rétt. Og ætti auðvitað að fá að standa um aldur og ævi. Sama hvað gömlu ríku fólki finnst. Þegar málarinn fékk skipun að ofan um að mála Sjávarútvegshúsið hvítt á ný, sagði hann þá bara já og amen? Hver var það sem skipaði honum að mála það? Það tekur enginn upp á því bara að mála eitt stykki vegg án þess að fá greitt fyrir það. Hver er þessi málari? Ég skil ekki neitt í þessu máli, samt elska ég það. En tímarnir breytast og mennirnir með og Reykjavíkurborg er orðin alveg hrikalega skemmtileg borg þótt það mætti kannski hirða betur um hana. Lífið er ekki eins og það var þegar Hjörleifur og hans kynslóð voru að alast upp. Nú er það málað fallegum litum. Er ekki einslitt. Hvítur veggur nefnilega bætir engu við. Fallegar myndir gera það. Megi sjómaðurinn snúa til baka sem fyrst og sem víðast. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Benedikt Bóas Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun