Byrjunarliðið á móti Sviss: Katrín kemur inn fyrir Öglu Maríu Elías Orri Njarðarson skrifar 22. júlí 2017 14:30 Katrín kemur inn í byrjunarlið Íslands. visir/vilhelm
Freyr Alexandersson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins, gerir eina breytingu á byrjunarliði sínu gegn Sviss í öðrum leik Íslands á Evrópumótinu í Hollandi. Katrín Ásbjörnsdóttir kemur inn í byrjunarliðið í stað Öglu Maríu Albertsdóttur. Katrín lék síðasta hálftímann í tapinu fyrir Frökkum á þriðjudaginn. Ísland spilar leikkerfið 3-4-3 líkt og í síðustu leikjum. Guðbjörg Gunnarsdóttir er á sínum stað í markinu og þær Glódís Perla Viggósdóttir, Sif Atladóttir og Ingibjörg Sigurðardóttir mynda þriggja manna vörn. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Hallbera Guðný Gísladóttir eru vængbakverðir og fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir og Sigríður Lára Garðarsdóttir á miðjunni. Frammi eru svo þær Katrín Ásbjörnsdóttir, Dagný Brynjarsdóttir og Fanndís Friðriksdóttir. Þetta er annar leikur Íslands á mótinu en Ísland tapaði fyrsta leiknum á móti Frökkum 1-0. Frakkar skoruðu mark sitt úr vítaspyrnu sem þótti afar umdeild. Ísland er í C-riðli á mótinu með Frakklandi, Sviss og Austurríki. Lið Sviss tapaði í fyrsta leik á móti Austurríki, einnig 1-0 og situr því í neðsta sæti fyrir leikinn ásamt Íslandi. Síðar í kvöld mætast Frakkar og Austurríki. Leikurinn hefst klukkan 16:00 og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Öll börn eigi að fá að vera hluti af liðinu Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Körfubolti Fleiri fréttir Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Nottingham Forest endaði taphrinuna Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Mark dæmt af Ronaldo og mark tekið af honum líka Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Matthías í stað Viktors við hlið Sölva Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Caroline tekur við af Donna með EM-landsliðið Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna? „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Sjá meira