Justin Bieber keyrði á ljósmyndara Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. júlí 2017 12:56 Justin Bieber spilaði á tónleikum til styrktar fórnarlamba hryðjuverkaárásarinnar í Manchester sem framin voru í maí síðastliðnum. Vísir/Getty
Poppstjarnan Justin Bieber keyrði á ljósmyndara í gærkvöldi í Los Angeles í Kaliforníu. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús vegna minniháttar áverka en lögregla segir ákeyrsluna óviljaverk. Í myndbandi, sem birtist á vefsíðu ABC-fréttastofunnar, sést Bieber koma út úr húsi og fara inn í stóran pallbíl. Í kringum pallbílinn er fjöldi ljósmyndara en þegar Bieber keyrir af stað stígur einn ljósmyndaranna í átt að bílnum og verður fyrir öðru framhjólinu. Í öðru myndbandi sést Bieber krjúpa hjá manninum, þar sem hann liggur í jörðinni, og spyrja hvort manninn vanti eitthvað.BREAKING: Witnesses say Justin Bieber hit a photographer in Beverly Hills on Wednesday evening. Police say it appears to be an accident. pic.twitter.com/tTqgKmAkGb— ABC World News Now (@abcWNN) July 27, 2017 Þá hafa myndir af Bieber ræða við lögreglu verið birtar en hann er sagður hafa verið samvinnuþýður við rannsókn málsins. Söngvarinn var frjáls ferða sinna eftir atvikið en það er ekki talið munu draga dilk á eftir sér fyrir hann. Nýlega tilkynnti Bieber að hann hygðist aflýsa öllum tónleikum sem eftir væru af Purpose-tónleikaferðalaginu. Enn hafa ekki fengist nákvæmar skýringar á því af hverju Bieber aflýsti tónleikaferðalaginu.
Mest lesið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Staðgöngumóðir var það Lífið Macklemore svarað Lífið Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Fleiri fréttir Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Sjá meira