Pólska stjórnarandstaðan mælist stærri en stjórnarflokkarnir Kjartan Kjartansson skrifar 28. júlí 2017 14:30 Andstæðingar ríkisstjórnar Póllands telja breytingar á dómstólum tilburði í átt að einræðisstjórn. Vísir/AFP
Ný skoðanakönnun í Póllandi sýnir að tveir helstu stjórnarandstöðuflokkarnir njóta nú meiri stuðnings en samsteypustjórn þjóðernisíhaldsmanna. Mótmælalda hefur gengið yfir landið að undanförnum vegna tilrauna stjórnarinnar til að endurskipuleggja réttarkerfið. Dagblaðið Rzeczpospolita birti könnun sem sýnir að frjálslyndu flokkarnir tveir, Borgaralega stefnan og Nowoczesna fengju 35% atkvæða ef kosið yrði í dag. Þriggja flokka samsteypustjórnin undir forystu Laga og réttlætis fengi hins vegar 32%. Ríkisfréttastofan TVP Info, sem hefur verið gagnrýnd fyrir vinnubrögð sín, birti aftur á móti aðra könnun sem sýndi stjórnarflokkana með 38% gegn 34% stjórnarandstöðuflokkanna ef þeir byðu sig allir fram hver í sínu lagi. Ekki var greint frá því hvað bandalag stjórnarandstöðuflokkanna fengi, að því er segir í frétt Reuters-fréttastofunnar. Andrzej Duda, forseti, beitti neitunarvaldi til þess að koma í veg fyrir að tvö frumvörp sem hefðu meðal annars gert ríkisstjórninni kleift að skipta út öllum hæstaréttardómurum landsins yrði að lögum á mánudag. Breytingum ríkisstjórnarinnar á dómskerfinu hefur verið mótmælt víða um Pólland undanfarið og hafa fulltrúar Evrópusambandsins hótað því að beita pólsk stjórnvöld refsiaðgerðum verði breytingarnar að lögum.
Tengdar fréttir Pólverjar fá mánaðarfrest til að hlýða Framkvæmdastjórn ESB gefur Pólverjum mánuð til að draga til baka umdeild áform um breytingar á dómskerfinu. Stjórnarandstæðingar segja ríkisstjórnarflokkinn reyna að taka sér meiri völd. Ríkisstjórnin segir dómskerfið spillt. 27. júlí 2017 07:00 Forseti Póllands skrifar undir umdeild lög Hluti af umdeildum breytingum ríkisstjórnar Póllands á dómstólum er orðinn af lögum eftir að Andrzej Duda forseti skrifaði undir í dag. 25. júlí 2017 14:17 Pólverjar mótmæla fyrir utan Hæstarétt Pólverjar beita Duda auknum þrýstingi. 23. júlí 2017 20:38 Forseti Póllands ætlar að stöðva umdeild lög með neitunarvaldi Fjöldamótmæli hafa verið haldin í Póllandi gegn umdeildum lögum sem gera ríkisstjórn landsins kleift að skipta út hæstaréttardómurum. Forseti Póllands tilkynnti í dag að hann hygðist beita neitunarvaldi sínu. 24. júlí 2017 09:41 Forseti Póllands hefur 21 dag til að gera upp hug sinn Andrzej Duda, forseti Póllands hefur 21 dag til að ákveða hvort hann hyggist staðfesta umdeild lög sem fela í sér að pólska þingið og dómsmálaráðherrann skipi dómara. 22. júlí 2017 12:59 Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent Einars Ólafssonar minnst í Lúxemborg Innlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Erlent Handtekinn á skemmtistað með þrjú ungmenni Innlent „Ég get sýnt þér leiðina að árangri en það er þitt að fara hana“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Læsi, ESB-leynimakk, Landeyjahöfn og húsnæðismál Innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Sjá meira
Pólverjar fá mánaðarfrest til að hlýða Framkvæmdastjórn ESB gefur Pólverjum mánuð til að draga til baka umdeild áform um breytingar á dómskerfinu. Stjórnarandstæðingar segja ríkisstjórnarflokkinn reyna að taka sér meiri völd. Ríkisstjórnin segir dómskerfið spillt. 27. júlí 2017 07:00
Forseti Póllands skrifar undir umdeild lög Hluti af umdeildum breytingum ríkisstjórnar Póllands á dómstólum er orðinn af lögum eftir að Andrzej Duda forseti skrifaði undir í dag. 25. júlí 2017 14:17
Forseti Póllands ætlar að stöðva umdeild lög með neitunarvaldi Fjöldamótmæli hafa verið haldin í Póllandi gegn umdeildum lögum sem gera ríkisstjórn landsins kleift að skipta út hæstaréttardómurum. Forseti Póllands tilkynnti í dag að hann hygðist beita neitunarvaldi sínu. 24. júlí 2017 09:41
Forseti Póllands hefur 21 dag til að gera upp hug sinn Andrzej Duda, forseti Póllands hefur 21 dag til að ákveða hvort hann hyggist staðfesta umdeild lög sem fela í sér að pólska þingið og dómsmálaráðherrann skipi dómara. 22. júlí 2017 12:59