Hipólító tapaði í fyrsta leik fyrir Keflavík sem er búið að vinna fimm í röð Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. júlí 2017 21:08 Pedró Hipólító tapaði í fyrsta leik með Framliðið. vísir/ernir
Keflavík er fljúgandi siglingu í Inkasso-deildinni í fótbolta en liðið vann fimmta leikinn í röð í kvöld þegar það lagði Fram, 1-0, á Laugardalsvellinum. Eina mark leiksins skoraði Hólmar Örn Rúnarsson á 47. mínútu en Hólmar er búinn að vera frábær að undanförnu eins og Keflavíkurliðið allt sem komst á toppinn með sigrinum. Fylkir getur þó endurheimt toppsætið á morgun. Þetta var fyrsti leikur Framliðsins undir stjórn Portúgalans Pedro Hipólító sem tók við því í vikunni eftir að Ásmundur Arnarsson var rekinn. Nýi maðurinn þurfti að horfa upp á tap í fyrsta leik. Fram er í fimmta sæti með fimmtán stig. Í botnbaráttunni vann HK svo sterkan heimasigur á Gróttu, 2-0, í Kórnum í Kópavogi. Bjarni Gunnarsson var maður kvöldsins en hann skoraði tvö mörk í fyrri hálfleik, það síðara úr víti. Bjarni kominn með þrjú mörk á tímabilinu. HK er búið að vinna tvo leiki af síðustu þremur og það eimitt á móti Gróttu og ÍR sem eru í botnbaráttunni með liðinu. Kópavogsliðið að vinna réttu leikina og spyrnti sér frá botnbaráttunni með þessum fína sigri. Grótta er í vondum málum á botni deildarinnar með aðeins fimm stig en þetta var fimmta tap liðsins í röð. Það er aðeins búið að innbyrða eitt stig af síðustu 24 mögulegum.Upplýsingar um markaskorara fengnar frá úrslit.net.Hólmar Örn Rúnarsson með boltann í Laugardalnum í kvöld.vísir/ernir
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Þórsarar á skriði í Inkasso-deildinni Leiknir Reykjavík tapaði á heimavelli í fyrsta leik eftir bikarsigurinn frækna. 6. júlí 2017 19:09 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira
Þórsarar á skriði í Inkasso-deildinni Leiknir Reykjavík tapaði á heimavelli í fyrsta leik eftir bikarsigurinn frækna. 6. júlí 2017 19:09