Spennandi söguminjar við hvert spor í Eyjum Kristján Már Unnarsson skrifar 20. júní 2017 21:45
Fornleifar í Herjólfsdal eru að miklu leyti órannsakaðar og afar spennandi vegna elstu byggðar á Íslandi. Söguminjar í Vestmannaeyjum var viðfangsefni þáttarins Ísland í sumar á Stöð 2 í kvöld, sem sjá má hér að ofan. Þar var Heimaey skoðuð í fylgd Gísla Óskarssonar, kennara og fréttaritara Stöðvar 2, og stiklað á nokkrum atburðum sögunnar, eins og landnámi, kristnitöku, Tyrkjaráni, sjóslysum og barnadauða. Í Herjólfsdal er talið að upphaf byggðar sé í Eyjum og hugsanlega á Íslandi. Gísli Óskarsson, okkar maður í Eyjum, tók þátt í frægri fornleifarannsókn Margrétar Hermanns Auðardóttur fyrir um fjörutíu árum þegar hún taldi sig hafa fundið í Herjólfsdal elsta bæjarstæði á Íslandi, frá því í kringum árið 700. Þær aldursákvarðanir eru umdeildar og hafa verið dregnar í efa. Gísli segir örnefni eins og Vestmannaeyjar og Írskibrunnur benda til að fyrstu íbúar dalsins hafi verið papar og hugsanlega hafi verið írskt klaustur í Eyjum. Hann telur að sögnin um dráp Ingólfs á þrælum Hjörleifs í Vestmannaeyjum sé í raun lýsing á því að Ingólfur hafi drepið írska munka. „Þetta eru í rauninni einhverjar merkustu fornleifar Íslands og stórmerkileg rannsókn sem Margrét framkvæmdi hér. Menn hafa verið að skoða þetta svæði með jarðsjá og fundið fleiri rústir, sem á eftir að skoða. Það er mjög spennandi verkefni og þetta er spennandi staður,” segir Gísli. Við stafkirkjuna á Skansinum rifjum við upp frásögnina af því þegar sendimenn Ólafs Tryggvasonar Noregskonungs, þeir Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason, reistu fyrstu kirkju á Íslandi á Hörgaeyri undir Heimakletti skömmu fyrir kristnitökuna árið 1000. Við Skansinn var einnig fyrsta fæðingarheimili byggt á Íslandi, Landlyst, til að vinna bug á skelfilegum ungbarnadauða í Eyjum. Skansinn var upphaflega reistur árið 1586 til að verjast ræningjum en dugði þó ekki í Tyrkjaráninu árið 1627. Sjóræningjarnir eru taldir hafa drepið 36 manns en rænt um 240 sem þeir hnepptu í þrældóm. Þrátt fyrir grimmilegar misþyrmingar ræningjanna hefur varðveist sögn um að þeir hafi hlíft móður sem alið hafði barn við Sængurkonustein. Einn ræningjanna hafi breitt skikkju yfir konuna og barnið. Saga Vestmannaeyja er einnig mörkuð hörmulegum sjóslysum en jafnframt björgunarafrekum. Á Ofanleitishamri er minnisvarði um einhverja mestu hetjudáðina þegar vélbáturinn Sigríður strandaði í febrúar árið 1928 og brotnaði í spón. Skipverjarnir fimm komust upp á syllu undir lóðréttu berginu og biðu þar alla nóttina í fannfergi og foráttubrimi. Einn þeirra, Jón Vigfússon, kleif þá hamarinn og sótti hjálp sem varð til þess að allir björguðust. Kristín Jóhannsdóttir, forstöðumaður Eldheima.Stöð 2/Arnar Halldórsson. Sagan um það hvernig bærinn lifði af eldgosið árið 1973 þykir mörgum einnig kraftaverk. Hvernig Eyjamenn sýna gestum sínum hina mögnuðu sögu Heimaeyjargossins fjöllum við um í þættinum Ísland í sumar næsta þriðjudag eftir viku. Þá verða Eldheimar heimsóttir í fylgd Kristínar Jóhannsdóttur og forvitnilegir staðir skoðaðir í nýja hrauninu með Gísla Óskarssyni.
Fornminjar Vestmannaeyjar Heimaeyjargosið 1973 Tengdar fréttir Ísland numið á árunum 700 til 750 Margrét Hermanns Auðardóttir segir bæði fornleifarannsóknir og frjógreiningar hafa staðfest að Ísland var numið mun fyrr en opinberlega er viðurkennt. Hún telur tregðu sagnfræðinga um að kenna að Íslandssagan sé ekki endurskrifuð. 16. mars 2009 19:06 Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira
Ísland numið á árunum 700 til 750 Margrét Hermanns Auðardóttir segir bæði fornleifarannsóknir og frjógreiningar hafa staðfest að Ísland var numið mun fyrr en opinberlega er viðurkennt. Hún telur tregðu sagnfræðinga um að kenna að Íslandssagan sé ekki endurskrifuð. 16. mars 2009 19:06