Barca horfir til Cuardrado fyrst Bellerín er of dýr Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. júní 2017 14:30 Juan Cuadrado fagnar marki með Juventus. vísir/getty
Spænska stórliðið Barcelona er nú sagt íhuga kaup á kólumbíska leikmanninum Juan Cuadrado frá Juventus en það leitar logandi ljósi að hægri bakverði. Barcelona vill fá Héctor Bellerín frá Arsenal og er tilbúið að seilast ansi langt til að landa Spánverjanum. Ekki þó svo langt að það sé tilbúið að borga þær 50 milljónir evra sem Arsenal vill fá fyrir hann. Cuadrado er að upplagi sóknarmaður þó hann hafi spilað mikið sem vængbakvörður hjá Juventus en yfir höfuð er hann ekkert hrifinn af því að spila sem varnarmaður. Sjálfur vonast hann til þess að vera áfram hjá Juvetnus. Barcelona er sagt hafa fylgst með Kólumbíumanninum í þó nokkurn tíma og verið með hann á lista þegar að hann spilaði fyrir Chelsea. Ekkert varð þó úr því að það lagði inn kauptilboð. Spænska félagið ætlar að leggja allt í sölurnar til að kaupa Marco Verratti frá Paris Saint-Germain í sumar en það gæti reynst ansi dýrt. Það verða því líklega ekki til fjármunir til að kaupa hægri bakvörð sem vill helst ekki spila sem varnarmaður á 50 milljónir evra. Héctor Bellerín er sjálfur sagður hafa mikinn á því að snúa aftur til Barcelona en þar spilaði hann sem ungur drengur. Hann er núna með spænska U21 árs landsliðinu á EM.
Spænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira