Lewis Hamilton vann í Kanada Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 11. júní 2017 19:38 Lewis Hamilton sigldi auðan sjó að mestu leyti í allan dag. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í kandadíska kappakstrinum. Valtteri Bottas á Mercedes varð annar og Daniel Ricciardo varð þriðji á Red Bull. Með því að vinna tryggði Hamilton sér 25 stig. Hann er þá einungis 12 stigum á eftir Sebastian Vettel í heimsmeistarakeppni ökumanna. Max Verstappen átti ógnar hraða ræsingu og stakk sér fram úr báðum Ferrari mönnum ásamt Valtteri Bottas. Hann vann sig upp um þrjú sæti frá ráslínu og í gegnum fyrstu beygju. Carlos Sainz gerði sig sekan um mistök á fyrsta hring. Hann keyrði á Romain Grosjean á Haas bílnum og skautaði svo stjórnlaus á Felipe Massa sem var saklaust fórnarlamb í atburðarásinni en Massa og Sainz gátu ekki haldið áfram. Öryggisbíllinn var kallaður út og var inn á brautinni í fimm hringi. Vettel kom inn á sjötta hring þegar í ljós kom að framvængurinn var brotinn á bíl hans. Skaðinn skeði þegar Verstappen stakk sér fram úr Vettel á fyrsta hring. Stafræni öryggisbíllinn var svo kallaður út þegar Red Bull bíll Verstappen stöðvaðist á brautinni. Bíllinn missti einfaldlega afl. Verstappen var annar þegar hann féll úr leik.Sebastian Vettel á brautinni í Kanada. Hann þurfti að hafa mikið fyrir fjórða sætinu í dag.Vísir/GettyBottas kom inn á 24. hring og tók Esteban Ocon á Force India við öðru sætinu, Ocon átti á þeim tímapunkti eftir að taka þjónustuhlé. Vettel vann sig upp þétt og örugglega eftir langt þjónustuhlé á sjötta hring. Þegar 30 hringjum var lokið var Vettel orðinn sjöundi á eftir liðsfélaga sínum Raikkonen. Ocon kom inn á 33. hring og fékk ofurmjúk dekk undir. Hann kom út á milli Ferrai manna í sjötta sæti. Ricciardo var þá orðinn þriðji á Red Bull bílnum. Raikkonen tók sitt annað þjónustuhlé á hring 42. Hann tapaði tveimur sætum á stoppinum. Raikkonen tók últra-mjúk dekk undir. Vettel kom inn á þjónustusvæðið í annað sinn og fékk últra-mjúk dekk undir. Vettel missti einungis Raikkonen fram úr sér. Vettel komst svo fram úr Force India ökumönnunum. Það verður einhver eftirmáli af þessu innan Force India liðsins. Ocon taldi sig eiga möguleika á að ná hærra í röðinni.
Formúla Tengdar fréttir Lewis Hamilton á ráspól í Kanada Lewis Hamilton á Mercedes verður á ráspól í kanadíska kappakstrinum í Formúlu 1 sem fer fram á morgun. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas varð þriðji á Mercedes. 10. júní 2017 18:05 Hamilton: Þetta var einn kynþokkafullur hringur Lewis Hamilton á Mercedes nældi sér í ráspól í dag með frábærri frammistöðu í Kanada. Hann náði sér einmitt í sinn fyrsta ráspól á ferlinum í Kanada fyrir 10 árum síðan. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 11. júní 2017 06:00 Lewis Hamilton og Kimi Raikkonen fljótastir á föstudegi Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á seinni æfingunni. 9. júní 2017 20:00 Mest lesið Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Aftur tapar Liverpool Fótbolti Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Svaf í tuttugu tíma á dag eftir slysið Sport Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Craig Pedersen heldur áfram með íslenska landsliðið Körfubolti Fékk óvart rautt spjald Enski boltinn Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira
Lewis Hamilton á ráspól í Kanada Lewis Hamilton á Mercedes verður á ráspól í kanadíska kappakstrinum í Formúlu 1 sem fer fram á morgun. Sebastian Vettel varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas varð þriðji á Mercedes. 10. júní 2017 18:05
Hamilton: Þetta var einn kynþokkafullur hringur Lewis Hamilton á Mercedes nældi sér í ráspól í dag með frábærri frammistöðu í Kanada. Hann náði sér einmitt í sinn fyrsta ráspól á ferlinum í Kanada fyrir 10 árum síðan. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? 11. júní 2017 06:00
Lewis Hamilton og Kimi Raikkonen fljótastir á föstudegi Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir kanadíska kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Kimi Raikkonen á Ferrari var fljótastur á seinni æfingunni. 9. júní 2017 20:00