Óska eftir myndböndum til að „koma í veg fyrir“ samkynhneigð Kjartan Kjartansson skrifar 4. júní 2017 11:25 Réttindabarátta LGBT-fólks á undir högg að sækja í Malasíu. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki beint. Vísir/EPA
Yfirvöld í Malasíu liggja undir harðri gagnrýni réttindasamtaka LGBT-fólks eftir að heilbrigðisráðuneytið þar hrinti af stað myndbandasamkeppni fyrir ungt fólk um hvernig sé hægt að stoppa samkynhneigð. Myndböndunum er ætlað að kanna hvernig sé hægt að koma í veg fyrir og stjórna því sem stjórnvöld kalla „kynvillu“, álitamál sem tengjast honum, afleiðingar hans og hvernig fólk geti leitað sér hjálpar, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC.„Stjórnvöld sjálf áttavillt“Í leiðbeiningum fyrir samkeppnina eru samkynhneigðir, transfólk og „strákastelpur“ nefndar sem dæmi um fólk sem þjáist af „kynvillu“. „Sú staðreynd að að þau skuli flokka LGBT-fólk saman sem „kynvillt“ sýnir að stjórnvöld eru sjálf mjög áttavillt,“ segir Pang Khee Teik, baráttumaður fyrir réttindum LGBT-fólks. Stjórnvöld hafna því að samkeppnin beinist gegn neinum sérstökum hópi eða að hún stuðli að mismunun fólks. Samkeppninni er beint að fólki á aldrinum 13-24 ára. Samkynhneigð er ólögleg í Malasíu, bæði samkvæmt veraldlegum og trúarlegum lögum, að viðlagðri fangelsisrefsingu og jafnvel líkamlegum refsingum. Þannig töfðu malasísk yfirvöld frumsýningu Disney-myndarinnar Fríða og dýrið á þeim forsendum að „samkynhneigð stund“ ætti sér stað í henni. Disney neitaði að breyta atriðinu og malasíska kvikmyndaeftirlitið lét undan að lokum.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Sjá meira