Beðið eftir Café Costco Ívar Halldórsson skrifar 6. júní 2017 06:30 Að geta ekki farið saddur frá borði á veitingastöðum í dag án þessa að fylla sig af frönskum og gosi fær allt of marga til að fórna heilsu sinni fyrir óhollari en saðsamari skammta á lægra verði. Í kjölfar opnunnar Costco hefur mikil umræða um óþarflega hátt vöruverð farið eins og eldur í sinu um samskiptamiðlana. Þegar verð á matvörum er nú lækkað vinstri hægri í matvöruverslunum sem virðast hafa rukkað óþarflega mikið fyrir vörur sínar, finnst nú líklegast flestum eðlilegt að veitingastaðir lækki að sama skapi verð sín í réttu hlutfalli við hagstæðara innkaupsverð. Nú ættu þeir annað hvort að geta stækkað skammtana eða lækkað verðið! Eða skyldi hagstæðara verð og ágóðinn allur hverfa ofan í vasa veitingastjóranna? Af hverju eru skammtar almennt minni á hversdags-veitingastöðum hérlendis en erlendis? Það væri svo sem kannski í lagi ef réttirnir væru þá mun ódýrari. En verðið er þó einnig langt frá því að vera fallegt – einkum ef maður vill borða eitthvað sem er ekki mettað af kolvetnum í formi franskra og fábrotinna brauðtegunda! Ég fékk mér frekar lítilfjörlegan pastarétt á Café Bleu í Kringlunni á 2.890 krónur. Mér var boðið að versla mér lítinn gosdrykk með á um fimm hundruð krónur án auka áfyllingar en afþakkaði, þar sem ég get keypt fjóra lítra af sama drykk í Bónus fyrir svipaðan pening. Þegar ég að máltíð lokinni var búinn að ganga um í verslunarmiðstöðinni í um stundarfjórðung var ég orðinn svangur á ný og hugleiddi að kaupa mér eitthvað meira að borða – en ákvað að þrauka fram að næsta matmálstíma. Ég og vinur minn keyptum okkur kjúklingavefju á Serranos í tvígang. Okkur langaði að fá okkur hádegisverð í hollari kantinum og afþökkuðum gos sem kostaði annan handlegginn, þar sem annars staðar. Í annað skiptið keyptum við stærri útgáfuna af burrito vefjunni á tæpar tvö þúsund krónur og var varla liðinn klukkutími áður en svengdin fór að segja til sín aftur. Hitt skiptið keyptum við minni vefjuna á rúmar sextán hundruð krónur en íhuguðum báðir að máltíð lokinni að fara inn á næsta veitingastað við hliðina og kaupa okkur eitthvað meira í gogginn. Máltíðin var ekki upp í nös á mús – hvað þá ketti! Máltíðin var allt of lítil og við fórum þaðan svangir og alls ekki sáttir. Þetta var eins og að vera rændur um hábjartan dag! Dæmin eru miður mörg og var það síðast nú um helgina sem ég og eiginkona mín fórum á “kaffi-deit” á Te og Kaffi. Fyrir tæpar tvö þúsund krónur fengum við tvo litla íslatte „to go“og eina bláberjamúffu í smærri kantinum. Það var reyndar hægt að spara sér hundraðkall með því að kaupa pínulitla múffu....en við ákváðum að splæsa í þessa „stóru“. Þetta sem við keyptum hefur ekki kostað mikið í framleiðslu og var okkur ekki einu sinni þjónað til borðs þar sem við tókum þessa míkródrykki og múffutítlu með okkur. Mér blöskraði nú líka þegar ég sá pínulitla og örþunna böku í gegnum glerið sem var til sölu á 895 krónur! Ég hélt að einhver væri að grínast! Og hvað er þá að frétta með þessa pínulitlu djúsa hjá Lemon sem þeir kalla stóra og rukka allhressilega fyrir? Maður þarf að taka pínulitla sopa af þessum „stóra“ drykk til að láta hann endast með hádegissamlokunni sem er sjálf ekki svo stór!...og ekki tímir maður að kaupa tvo drykki því þá er maður líklega kominn upp í þrjú þúsund krónur eða meira fyrir máltíð sem er ekki í stærri kantinum! Ég ferðast talsvert og var í USA, Danmörku og Svíþjóð á dögunum og eru verð og skammtastærðir í allt annari vídd þar! Maður fær svo miklu meira fyrir peninginn og skammtar þar eru einnig almennt mun stærri. Stór drykkur hér er lítill drykkur á flestum stöðum erlendis og stór skammtur hér yfirleitt venjulegur skammtur erlendis. Ég fer sjaldan svangur af veitingastöðum erlendis og verðið þar fær mig ekki til að missa matarlystina eins og svo oft hér heima. Hluti af því að kaupa sér veitingar er bæði upplifunin og ánægjan sem fylgir því að njóta þeirra. En hátt verð og litlir skammtar skyggja á matargleðina og ég sleppi því að kaupa það sem mig langar virkilega í af því að ég fæ samviskubit og mér finnst ég vera að fara illa með peningana mína. Maður nýtur síður þess að borða eða drekka það sem maður greiðir fyrir með hálf blóðugum seðlum. Auðvitað finnast staðir hérlendis sem standa sig betur en aðrir í að fylla á tankinn hjá gestum sínum. Þeir vita hverjir þeir eru og ætla ég ekki að nefna þá hér, en ekki eru þeir margir. Það eru þeir veitingastaðir sem ég er farinn að skipta nær eingöngu við í dag. Hinir verða að gefa mér ástæðu til að snúa aftur til þeirra með veskið mitt. Hvenær kemur „Café Costco“ eiginlega til Íslands?! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ívar Halldórsson Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar