Aníta örugg inn á HM í London eftir frábært hlaup Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2017 11:41 Aníta Hinriksdóttir. Vísir/EPA
Íslenska hlaupadrottningin Aníta Hinriksdóttir hefur aðeins einu sinni hlaupið hraðar í 800 metra hlaupi en hún gerði í gær á alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Oordegem í Hollandi. Aníta kom í mark á 2:00.33 mínútum og varð önnur í keppninni á eftir Shelaynu Oskan-Clarke frá Bretlandi sem hljóp á 2:00.17 mínútum. Íslandsmet Aníta frá Ólympíuleikunum í Ríó er 2:00,14 mínútur en þegar hún sló það met í ágúst síðast liðnum þá hafði Íslandsmet hennar staðið í þrjú ár. Aníta náði með þessu flotta hlaupi lágmarki inn á HM í London sem fer fram 4. til 13. ágúst. Lágmarkið inn á heimsmeistaramótið var 2:01,00 mínútur. HM í London í haust verður fimmta stórmót Anítu í röð utanhúss en hún var með á EM 2014, HM 2015, EM 2016 og ÓL 2016. Hlaupið hjá Anítu skilar henni upp í sextánda sæti á heimslista IAAF en Caster Semenya hefur hlaupið hraðast á árinu eða á 1:56,61 mínútum. Tólf konur hafa náð að hlaupa 800 metrana á undir tveimur mínútum.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Handbolti Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Handbolti „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Íslenski boltinn Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Enski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Íslenski boltinn Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Íslenski boltinn Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Enski boltinn Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ Formúla 1 Fleiri fréttir „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa Hamilton pirraður á Ferrari: „Erfitt að horfa á þetta“ „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Dagskráin í dag: Fram mætir í Kópavoginn og Stúkan gerir allt upp Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Sjá meira