Sendiherra særður eftir viðskipti sín við villigölt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. maí 2017 17:53 Villigeltir eru engin lömb að leika sér við. Vísir/Getty
Sendiherrar lenda oft í snúnum aðstæðum við störf í varasömum heimi alþjóðasamskipta. Sendiherra Bretlands í Austurríki þurfti að taka á stóra sínum á dögunum þegar hann var á ferð í garði í höfubörg Austurríkis, Vínarborg. Leigh Turner er sendiherra Bretlands í Austurríki og greinir hann frá samskiptum sínum við villigöltinn í bloggfærslu á vef breska utanríkisráðuneytisins.Í frétt BBC um málið segir að Turner hafi verið á gangi er hann varð var við villigelti örskammt frá sér. Hélt hann áfram för sinni inn í skóglendi þar sem hann varð var við annan hóp af villigöltum. Turner vildi ekki ónáða þá og gekk hægt í burtu. Varð hann þá var við hljóð sem honum fannst vera líkast hesti á hlaupum. Þegar hann leit við sá hann að risastór villigöltur var á fljúgandi ferð í átt að honum. Turner áttaði sig á því að villigölturinn gæti hlaupið hraðar en hann sjálfur og reyndi hann því að klifra upp á trjádrumba sem þar lágu stutt frá. Vildi ekki svo betur til en að Turner rann og meiddi sig í fallinu. Þegar sendiherrann sneri sér við var villigölturinn á bak og brott en Turner sat eftir með mar á líkama og sál eftir viðskipti sín við villigöltinn.My bruising encounter with a wild boar in #Vienna - my new blog https://t.co/mKRW0yxOni pic.twitter.com/VvtA4KmZ0F— Leigh Turner (@LeighTurnerFCO) May 15, 2017
Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Sjá meira