Dæmdur fyrir að berja mann og draga hann eftir Austurstræti Birgir Olgeirsson skrifar 17. maí 2017 13:07 Frá Austurstræti. Vísir/Pjetur.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir líkamsárás við verslun 10-11 í Austurstræti og fyrir brot gegn valdstjórninni. Var maðurinn ákærður fyrir að hafa ráðist á annan mann við 10-11, slegið hann í andlit svo hann féll í götuna, sest síðan ofan á manninn og slegið hann í andlit, tekið í fætur mannsins og dregið hann eftir götunni, allt með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut yfirborðskennt mar yfir bringubeini, bólgur í kringum hægra auga og brot í augnbotni hægra megin. Átti þessi árás sér stað í október árið 2015. Maðurinn var sömuleiðis ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa að kvöldi mánudagsins 22. febrúar árið 2016 hrækt og frussað á lögregluvarðstjóra á lögreglustöðinni við Dalveg í Kópavogi. Lögregluvarðstjórinn var þar við skyldustörf og fékk yfir sig munnvatn og hor frá manninum. Maðurinn neitaði sök í fyrri ákærunni en játaði að hafa framið það brot sem honum var gefið sök í síðari ákærunni. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi sannað með framburði vitna að maðurinn hefði gerst sekur um líkamsárásina við 10-11.Dóminn má lesa hér.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira