Lior Suchard les hugsanir í Eldborg Tónleikur ehf. 5. maí 2017 15:45 Suchard er talinn fremstur meðal jafningja þegar kemur að yfirskilvitlegum hæfileikum.
Lior Suchard, sem hefur hlotið viðurnefnið meistari hugans, kemur fram í Eldborgarsal Hörpu þann 9. maí næstkomandi. Hann hefur lag á að koma áhorfendum stöðugt á óvart með atriðum sem virðast stangast á við náttúrulögmálin. „Nú gefst Íslendingum í fyrsta skipti tækifæri til að kynnast þessum frábæra skemmtikrafti en hann hefur heillað hverja stórstjörnuna á fætur annarri upp úr skónum,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson. „Hann segir svo virðast sem Lior Suchard geti lesið hugsanir. „Hann getur kafað niður í innstu hugarfylgsni fólks og vitað hvað það hyggst segja áður en það segir nokkuð. Í stórbrotnum sýningum hefur hann fært til hluti með hugaraflinu einu saman, lesið hugsanir manna, sagt fyrir um óorðna atburði og jafnvel haft áhrif á hugsanir margra áhorfenda í senn.“ Að sögn Guðbjarts er Suchard er talinn fremstur meðal jafningja þegar kemur að yfirskilvitlegum hæfileikum og hinn heimsfrægi Uri Geller hefur sagt Lior verðugan arftaka sinn. Lior Suchard er eftirsóttur skemmtikraftur um allan heim og hefur sýnt í meira en 50 þjóðlöndum. Þá hefur hann margoft komið fram í helstu spjallþáttum í Bandaríkjanna. Þar á meðal fimm sinnum í „The Tonight Show“ þar sem hann hefur heillað fólk eins og James Spader, Kim Kardashian, Zac Efron, Taylor Lautner og Jimmy Fallon upp úr skónum. Jay Leno varð einnig furðu lostinn þegar hann snéri baki í Lior og velti teningi í lófanum, því ævinlega gat Suchard sagt með réttu hvað hlið teningsins snéri upp. Guðbjartur segist alltaf hafa verið mikill aðdáandi Darren Brown. Ég datt svo niður á Suchard og fannst hann svo magnaður að ég átti ekki til orð. „Ég ákvað því að fá hann til landsins.“ Aðspurður telur Guðbjartur líklegt að Íslendingar kunni vel og meta. „Við erum þekkt fyrir að trúa á álfa, tröll og huldufólk og ég hef mikla trú á því að Suchard falli í kramið.“ Hér eru nokkur dæmi um viðbrögð þeirra sem hafa hlýtt á hann í gegnum tíðina: „Þetta er það magnaðasta sem ég hef nokkurn tíman séð. Og ég hef marga fjöruna sopið.“ – Larry King „Ég hélt að ég hefði séð allt.“ – Bill Gates „Algerlega stórbrotið! Þú kollvarpar öllu. Ég mun halda áfram að tala máli þínu hvert sem ég fer.“ – Tony Blair „Algerlega ótrúlegt. Og fyndið. Ég gæti horft á þennan mann klukkutímum saman.“ – Alicia Keys „Holy S%/&&! Þetta var stórkostlegt.“ – Leonardo DiCaprio „Í sannleika sagt. Þetta er engu líkt. Hann gerir það að verkum að þú situr á stólbríkinni og svitnar af spenningi.“ – Rene Zellweger. Hér fyrir neðan er myndbrot. Allar nánari upplýsingar er að finna á Harpa.is
Mest lesið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Á loks réttinn að öllum plötunum sínum Lífið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Lífið „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Matti Matt nú meistari Lífið Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina Lífið samstarf Fleiri fréttir Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorlákur er kominn í úrslit Heilög tvenna fyrir hlauparann! Yfir tvö hundruð tryllitæki sýnd um helgina A Country Night in Nashville kemur í Hörpu Iðnaðarmaður ársins 2025 - Máni er kominn í úrslit Bakið er hætt að hefna sín Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þorleifur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Eyjólfur er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 – Róbert er kominn í úrslit Iðnaðarmaður ársins 2025 - Þór er kominn í úrslit Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Iðnaðarmaður ársins 2025 - Elsa er komin í úrslit Iðnaðarmaður ársins - Davíð Már er kominn í úrslit Stuðla að heilbrigði með lífrænum barnamat Komdu með í ævintýri til Ítalíu Viltu kynnast töfrum Taílands? Ný og endurbætt snyrtivörudeild opnuð í Hagkaup Pub Quiz hvar sem er, hvenær sem er! Fyrsta háhælahlaup Íslandssögunnar Ný hugsun í heimi brúnkuvara Fyrirtæki á Norðurlandi styðja SÁÁ Komdu með á ströndina — Ný sumarlína frá Moomin Arabia BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Tork gaur: BMW neglir fallegan framenda Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Sjá meira