Allt stór verk en þau eru góð Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. apríl 2017 09:45 Sigurður Bjarki Gunnarsson, Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir og Una Sveinbjarnardóttir auk Rúnars Óskarssonar sem verður í aðalhlutverki.
Síðustu Tíbrártónleikar vetrarins verða á morgun, sunnudag, klukkan 14 í Salnum. Þá leggur klarínettleikarinn Rúnar Óskarsson í það þrekvirki að flytja öll fjögur verk Johannesar Brahms sem hann samdi fyrir klarínett. Tvær sónötur fyrir klarínett og píanó, eitt tríó fyrir klarínett, píanó og selló og kvintett fyrir klarínett og strengjakvartett. „Þetta eru allt stór verk en þau eru góð,“ segir Rúnar og nefnir því til sönnunar að hann hafi spilað þau öðru hvoru í allan vetur til undirbúnings tónleikanna og alltaf þótt þau skemmtileg. Áður en Brahms samdi verkin í lok nítjándu aldar fyrir klarínettleikarann Richard Mühlfeld, hafði hann tilkynnt að hann væri hættur að semja tónlist, að sögn Rúnars. „Fyrirmyndir Brahms voru fáar og stórar klarínettsónötur eiginlega ekki til, þannig að hann varð frumkvöðull og það er dásamlegt að honum skyldi takast svona vel upp,“ segir hann og tekur fram að Sigurður I. Snorrason klarínettleikari muni fræða tónleikagesti um tónskáldið og tilurð verkanna. Rúnar segir klarínettleikara þakkláta fyrir að Brahms náði að kynnast Mühlfeld. „Auðvitað væri rosa gaman ef hann hefði gert konsert fyrir heila hljómsveit og klarínett, svona ef maður vill væla mikið!“ segir hann glaðlega.
Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Gloria Steinem er látin Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira