Grindavík skoraði fjögur á Skaganum og setti upp nýliðaslag í undanúrslitunum Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. apríl 2017 20:56 Grindjánar hafa spilað vel á undirbúningstímabilinu. vísir/hanna
Grindavík komst í kvöld í undanúrslit Lengjubikars karla í fótbolta þegar liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á ÍA í fótboltahöllinni á Akranesi. Grindvíkingar byrjuðu af miklum krafti en fengu hjálp við að skora fyrsta markið þegar Ingvar Þór Kale, markvörður ÍA, skoraði sjálfsmark strax á 1. mínútu leiksins. Andri Rúnar Bjarnason tvöfaldaði forskot Grindjána á 12. mínútu eftir sendingu frá William Daniels en miðvörðurinn Hafþór Pétursson minnkaði muninn í 2-1 fyrir ÍA aðeins þremur mínútum síðar. Markaveislunni í fyrri hálfleik var ekki lokið því Andri Rúnar skoraði annað mark sitt á 29. mínútu og eftir það fór Ingvar Þór Kale, markvörður Skagamanna, af velli fyrir Pál Gísla Jónsson. Staðan 3-1 í hálfleik og í þeim síðari bætti enski framherjinn William Daniels við fjórða markinu á 53. mínútu en meira var ekki skorað. Lokatölur, 4-1. Grindavík mætir KA í nýliðaslag í undanúrslitunum á fimmtudaginn en bæði lið unnu sér inn sæti í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð. KA pakkaði Selfossi saman, 4-1, fyrir norðan fyrr í dag.Markaskorarar fengnir frá úrslit.net.
Íslenski boltinn Tengdar fréttir KA gekk frá Selfyssingum í seinni hálfleik KA, sem verður nýliði í Pepsi-deildinni í sumar, komst auðveldlega í undanúrslit Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld þegar liðið lagði Inkasso-deildarlið Selfoss, 4-1, í Boganum fyrir norðan. 10. apríl 2017 19:04 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ Sjá meira
KA gekk frá Selfyssingum í seinni hálfleik KA, sem verður nýliði í Pepsi-deildinni í sumar, komst auðveldlega í undanúrslit Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld þegar liðið lagði Inkasso-deildarlið Selfoss, 4-1, í Boganum fyrir norðan. 10. apríl 2017 19:04