Úlfarsá komin til SVFR Karl Lúðvíksson skrifar 25. mars 2017 09:47
Í gær voru undirritaðir samningar um leigu á Úlfarsá / Korpu til Stangaveiðifélags Reykjavíkur eb þá eru báðar Reykjavíkurárnar hjá félaginu. Korpa hefur verið vinsæl veiðiá í mörg ár og er algjörlega sjálfbær. Í henni er líka nokkur sjóbirtingur og síðsumars getur þó nokkur ganga verið í ánna sem gerir það tímabil mjög spennandi. Sala veiðileyfa verður með því sniði til að byrja með að félagsmenn sendi tölvupóst á Stjána Ben sölustjóra SVFR. Verð veiðileyfa verður frá 12.900 – 36.900 kr. Áinn er veidd alveg frá ósum og langleiðina upp að Hafravatni en lítil fyrirstaða er fyrir laxinn og sjóbirtingin eftir að fossinn neðan við veiðihúsið er að baki og veiðist fiskur oft við Stíflu strax á fyrstu dögum eftir opnun. Meðalveiðin í ánni er yfirleitt um 150-200 laxar en ekki hefur verið haldið nægilega vel um skráningu æá sjóbirting svo ekki liggja marktækar tölur fyrir þar sem veiðimenn hafa oftar en ekki sleppt að skrá hann í þar til gerða veiðibók. Korpa er þrælskemmtileg á og á sinn fasta hóp sem veiðir í henni á hverju ári.
Mest lesið Fyrsti laxinn kominn í Laxá í Kjós Veiði RISE fluguveiði- hátíðin fer fram 14. apríl Veiði Svipaður fjöldi umsókna og 2011 Veiði Laxinn dreifir sér vel í Korpu Veiði 59 laxar úr Eystri Rangá í gær Veiði Ein af vinsælustu flugum sumarsins Veiði Langá opnaði í morgun með tveimur löxum Veiði Fleiri fréttir af opnunum laxveiðiánna Veiði Innsend frétt úr Korpunni Veiði Veiðiferð til Belize í vinning Veiði