Stelpurnar í 2. styrkleikaflokki fyrir HM-dráttinn Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. mars 2017 10:30 Stelpurnar okkar gætu lent í erfiðum riðli í undankeppni HM 2019. vísir/ernir
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í 2. styrkleikaflokki þegar dregið verður til undankeppni HM 2019 þann 25. apríl en lokamót HM fer fram í Frakklandi eftir tvö ár. Stelpurnar okkar eru tíunda sæti af þeim 31 þjóð sem komast beint í riðlakeppnina. Holland, gestgjafar EM í sumar, eru í níunda sæti en Ítalía (8. sæti) slefaði upp í efsta styrkleikaflokk með aðeins betri árangur en Holland og Ísland. Litlu munaði að Ísland væri í efsta styrkleikaflokki. Þegar stigin voru talin til að ákveða niðuröðunina gilti árangur liða á EM 2013 20 prósent, árangur á HM 2015 40 prósent og árangur í undankeppni EM 2017 40 prósent. Ísland komst í átta liða úrslit á EM fyrir fjórum árum en var ekki með á HM í Kanada. Þá stóðu stelpurnar sig frábærlega í undankeppni EM og unnu þar alla leiki nema einn. Styrkleikaflokkarnir eru fimm en dregið verður í sjö riðla. Efsta þjóð hvers riðils kemst beint á HM og fjögur bestu liðin í öðru sæti komast í umspil um síðustu sæti Evrópu á heimsmeistaramótinu í Frakklandi árið 2019. Þýskaland, England, Noregur, Svíþjóð, Spánn, Sviss og Ítalía skipa efsta styrkleikaflokkinn en Frakkar eru vitaskuld öruggir með sæti sitt sem gestgjafar. Ísland er svo í öðrum styrkleikaflokki með Hollandi, Skotlandi, Danmörku, Austurríki, Belgíu og Rússlandi.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Sjá meira