Ekki sjálfgefið fyrir Skotland að fá aðgang Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. mars 2017 10:33 Nicola Sturgeon og Guðlaugur Þór Þórðarsson. Vísir/Getty/Stefán
Það gæti tekið Skotland dágóðan tíma að fá aðgang að innri markaði Evrópusambandins lýsi Skotar yfir sjálfstæði eftir þjóðaratkvæðagreiðslu þess efnis. Fregnir herma að Nicola Sturgeon vilji að Skotar verði meðlimir að EFTA, fremur en Evrópusambandinu, verði ríkið sjálfstætt. Daily Telegraph í Bretlandi greindi frá því í gær að Sturgeon, ráðherra heimastjórnar Skotlands, myndi leggja niður áætlanir Skoska þjóðarflokksins um að sækja um aðild að Evrópusambandinu fyrir sjálfstætt Skotland og sækjast frekar eftir aðild að EFTA, fríverslunarsamtökum Evrópu. Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra, segir þó að sjálfstæði Skotlands feli líklega í sér að Skotland myndi vera án aðildar að innri markaði Evrópusambandsins um einhvern tíma þar sem aðeins sjálfstæð og fullvalda ríki geti sótt um aðild að EFTA, samkvæmt reglum samtakanna.Þetta kemur fram í Daily Telegraph þar sem Guðlaugur Þór segir að þessar reglur flæki málið fyrir Skotland ætli yfirvöld þar sér að sækja um aðild að EFTA eftir að þjóðaratkvæðagreiðsla um sjálfstæði er fram en áður en Skotland yfirgefur Bretland á formlegan hátt. Hann segir þó að framtíð Skotlands sé eitthvað sem yfirvöld í Skotlandi og Bretlandi þurfi að ákveða sín á milli og að hann vilji ekki eyða miklum tíma í að ræða mögulegar tilgátur um framtíð Skotlands. Sturgeon tilkynnti í vikunni að hún myndi sækjast eftir heimild skoska þingsins til þess að halda aðra þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands. Slík þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram árið 2014 þar sem Skotar höfnuðu naumlega sjálfstæði.
Tengdar fréttir Sækist eftir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands Nicola Sturgeon, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, mun sækjast eftir heimild til þess að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi. 13. mars 2017 12:21 Segja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands skapa sundrung "Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla myndi skapa sundrung og mikla efnahagslega óvissu á versta mögulega tíma,“ sagði talsmaður ríkisstjórn Bretlands. 13. mars 2017 16:30 Skotland verði að hafa val um sjálfstæði Nicola Sturgeon segir að líkurnar aukist á að Skotar lýsi yfir sjálfstæði frá Bretlandi vegna Brexit. 17. janúar 2017 15:53 Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira
Sækist eftir annarri þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands Nicola Sturgeon, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, mun sækjast eftir heimild til þess að halda nýja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands frá Bretlandi. 13. mars 2017 12:21
Segja þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Skotlands skapa sundrung "Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla myndi skapa sundrung og mikla efnahagslega óvissu á versta mögulega tíma,“ sagði talsmaður ríkisstjórn Bretlands. 13. mars 2017 16:30
Skotland verði að hafa val um sjálfstæði Nicola Sturgeon segir að líkurnar aukist á að Skotar lýsi yfir sjálfstæði frá Bretlandi vegna Brexit. 17. janúar 2017 15:53