Úrslitaleikurinn hjá stelpunum hefst ekki fyrr en klukkan 20.30 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. febrúar 2017 14:30 Valur og Fylkir spila til úrslita í ár. Vísir/Daníel
Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts kvenna í fótbolta er ekki spilaður á venjulegum tíma í ár. Leiknum mun ljúka í kringum hálf ellefu um kvöld. Fylkir og Valur spila um Reykjavíkurmeistaratitil kvenna í ár og fer leikurinn fram í Egilshöllinni fimmtudagskvöldið 23. febrúar næstkomandi. Karlarnir léku sinn úrslitaleik á mánudagskvöldið var og unnu Valsmenn þá 1-0 sigur á Fjölni.Karlaleikurinn hófst klukkan 19.00 en úrslitaleikur stelpnanna hefst ekki fyrr en klukkan 20.30. Þetta er fjórða árið í röð sem stelpurnar spila sérstakan úrslitaleik í Reykjavíkurmótinu en árin á undan vannst titilinn í deildarkeppni þar sem allir spiluðu við alla. Leiktími úrslitaleiksins í ár sker sig algjörlega úr á meðal leiktíma úrslitaleikja Reykjavíkurmótsins undanfarin fjögur ár. Valskonur spiluðu reyndar leik upp á líf eða dauða í Reykjavíkurmótinu svo seint á dögunum því undanúrslitaleikur KR og Vals hófst klukkan 20.45. Ástæðan var að báðir undanúrslitaleikirnir fóru fram það kvöld og leikur Fylkis og Fjölnis var á undan eða klukkan 18.45. Það verður örugglega ekki mikið um ungar knattspyrnukonur í Egilshöll í úrslitaleiknum á fimmtudagskvöldið en útivistartími barna yngri en 12 ára er til 20:00 á vetrum en fyrir ungmenni 13 til 16 ára er það til 22:00 yfir vetrartímann.Tími á úrslitaleikjum Reykjavíkurmóts karla og kvenna undanfarin ár2017: Karlar (19.00) - Konur (20.30)2016: Karlar (19.00) - Konur (18.45)2015: Karlar (19.00) - Konur (19.00)2014: Karlar (19.00) - Konur (19.00)
Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Leik lokið: Breiðablik - Þór/KA 6-1 | Blikar skoruðu sex og eru áfram á toppnum Tveir varnarmenn KR meiddust á æfingu á Starhaga „Við fórum beint úr því að vera ömurlegir í frábærir“ „Það hlaut að koma að því“ Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Selfoss og KFA mætast í úrslitum „Er ekki bara kominn tími til að breyta þessu?“ „Okkar að stöðva drauma þeirra í fæðingu“ UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik „Ætlum að taka bikarinn norður, það er bara staðan“ „Held að þetta verði mjög erfiður leikur“ Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Keflavík í góðri stöðu „Mér finnst að allar þessar krúsídúllur eigi að bíða“ Þóra vonar að Tinna finni sér annað lið: „Kæmi mér á óvart ef það yrði ekki slegist um hana“ Flestir mæta á heimaleiki Blika Sjáðu heimsókn Nabblans á Meistaravelli Svona raðast leikirnir í Bestu deild karla Björn Daníel brattur: „Ætli þetta sé ekki hrörnun vöðvanna sökum aldurs?“ Sjáðu mörkin úr stórsigrum Vals og Víkings Sjá meira