Segja marga af leikmönnum 2. deildar þéna yfir 300.000 krónur á ári Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. febrúar 2017 16:00 Huginn féll í 2. deild og má ekki semja við leikmenn sína nema tillagan verði samþykkt. vísir/hanna
Ein af tíu ályktunartillögum sem liggja fyrir á ársþingi KSÍ á morgun er varðar móta- og samningamál er tillaga Vestra sem vill að lið í 2. deild karla geti gert leikmannasamninga. Vestri vill breytingu á grein 14.5 í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga en í henni segir að „aðeins félögum í Pepsi-deild karla, 1. deild karla og í Pepsi-deild kvenna er heimilt að gera leikmannssamning.“ Vestramenn vilja að 2. deild karla verði bætt við reglugerðina þannig lið í þriðju efstu deild Íslandsmótsins í karlaflokki geti „samið löglega“ við sína leikmenn eins og það er orðað í greinargerðinni. Fullyrt er að margir leikmenn í 2. deild karla þéna yfir 300.000 krónur á ár. Nokkuð er um það að liðin í 2. deild sæki sér erlenda leikmenn sem margir hverjir eru atvinnumenn en í greinargerð Vestra segir að 28 erlendir leikmenn spluðu í 2. deildinni á síðasta ári. Sjö þeirra voru í Vestra. „Samningar sem gerðir eru við viðkomandi leikmenn sem hljóða upp á hærri greiðslur en kr. 300.000,- á ári eru því ólöglegir samkvæmt reglum KSÍ. Við óskum þess vegna eftir því að breytingar verði gerðar á reglu 14.5 þannig að lið í 2. deild karla í knattspyrnu geti samið löglega við leikmenn sína og skilað inn samningi sem er viðurkenndur af sambandinu,“ segir í greinargerð Vestra. Vestfirska liðið stendur eitt að tillögunni sem má lesa í heild sinni hér.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ Sjá meira