Fótbolti

Emil og félagar fengu skell í Flórens

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Emil í baráttu við Borja Valero sem skoraði fyrsta mark Fiorentina.
Emil í baráttu við Borja Valero sem skoraði fyrsta mark Fiorentina. vísir/getty
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn þegar Udinese tapaði 3-0 fyrir Fiorentina í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Þetta var þriðja tap Udinese í síðustu fimm leikjum en liðið er í 12. sæti deildarinnar með 29 stig.

Borja Valero, Khouma Babacar og Federico Fernardeschi skoruðu mörk Fiorentina sem er í 8. sætinu.

Emil hefur komið við sögu í 16 deildarleikjum í vetur og lagt upp þrjú mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×