Fylkismenn vilja vera komnir með gervigras á aðalvöllinn í maí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. febrúar 2017 19:00
Fylkismenn vilja fara sömu leið og Valsmenn og setja gervigras á aðalvöllinn sinn. Þeir stefna á að spila fyrsta leik í sumar á nýju gervigrasi. Arnar Björnsson kannaði þetta mál í kvöldfréttum Stöðvar tvö í kvöld og ræddi við Björn Gíslason, formann Fylkis. Knattspyrnufélagið Fylkir á í samningaviðræðum við Reykjavíkurborg um að setja gervigras á aðalvöll félagsins. Formaður Fylkis vonast til þess að völlurinn verði tilbúinn í maí, á 50 ára afmæli félagsins. Fótboltavöllur þeirra Fylkismanna hefur oft verið til vandræða en nú gætu Fylkismenn séð fram á betri tíð. Gert er ráð fyrir að Reykjavíkurborg fái æfingasvæði Fylkis við Hraunbæ undir íbúðabyggð en í staðinn fær Fylkir gervigras á aðalvöllinn með flóðljósum. „Við erum bjartsýnir á það að þetta takist allt saman og það það verði komið gervigras á 50 ára afmælisári félagsins. Ég held að ég geti sagt það að það sé algjör einhugur að fara í gervigras. Við lentum í því fyrir þremur árum að geta ekki farið að spila fyrr en um miðjan júní og þá spilaði liðið sjö útileiki í röð hjá bæði karla og kvennaliði. Það gengur ekki. Tímabilið er að byrja núna í lok apríl og það sjá það allir að þetta er ekki hægt, “ sagði Björn Gíslason, formaður Fylkis í samtali við Arnar Björnsson. Valsmenn réðust í framkvæmdir í júlí 2015 og skiptu náttúrulega grasinu út fyrir gervigras. Fylkismenn hafa leitað í smiðju Valsmanna. Það má sjá allt innslag Arnars um nýja gervigrasið hér fyrir neðan.
Íslenski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Sjá meira