Ljós heimsins Frosti Logason skrifar 15. desember 2016 07:00 Ég verð að játa að ég er, og hef alltaf verið, mikið jólabarn. Mér finnst fátt gleðilegra en að fá frí frá daglegri vinnu og eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Borða góðan mat með vinum og ættingjum. Auðvitað var ég líka spenntur fyrir öllum pökkunum þegar ég var yngri, þakklátur og glaður, en það eru aðrir hlutir sem skipta meira máli í dag. Nú reynum við að láta gott af okkur leiða, hugsa vel um þá sem minna mega sín og látum kærleikann skína í allar áttir. Jólin eru einstakur tími og hátíðarhöldin sem þeim fylgja hafa fylgt samfélagi okkar frá upphafi. Því eins og allir vita hafa jólin frá fornu fari verið hátíð heiðinna manna og alltaf verið haldin við vetrarsólhvörf. Jólin eru nefnilega hátíð ljóssins þegar sólin fer að hækka á lofti og dag tekur að lengja. Þetta eru tímamót nýs upphafs, nýs árs og friðar. Öll tákn jólanna, svo sem jólatréð, jólasveinarnir, jólaljósin og jólagjafirnar eru upprunnin úr þessum góða heiðna sið og íslenskri þjóðtrú. Kristnir menn, þeir sem trúa því að palestínskur gyðingur hafi risið upp úr dauðanum fyrir tæpum tvö þúsund árum, ákváðu eitt sinn að fæðingardegi hans yrði fagnað á þessum sama tíma. Þeir vissu nefnilega ekki alveg hvenær hann átti afmæli. Sólstöðuhátíðin, þegar dag tók að lengja, var gríðarlega vinsæl og því þótti tilvalið að gera hana að kristinni hátíð með því að minnast fæðingar hins afturgengna. En hann sagði eitt sinn um sjálfan sig af mikilli hógværð: „Ég er ljós heimsins.“ Sem heiðin þjóð bjóðum við hina kristnu ávallt velkomna í veisluna. Gleðileg jól! Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Frosti Logason Mest lesið Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Tómstundafræðingar gegn varðhaldsbúðum Andrea Rói Sigurbjörns,Ása Kristín Einarsdóttir,Elí Hörpu- og Önundarbur,Maríanna Wathne Kristjánsdóttir,Valgeir Þór Jakobsson,Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir Skoðun Eingreiðsla til öryrkja í desember bundin við lögheimili á Íslandi Jón Frímann Jónsson Skoðun Að klifra upp í tunnurnar var bara byrjunin Anahita Sahar Babaei Skoðun Kosningin í stjórn RÚV á morgun mun aldrei gleymast Björn B. Björnsson Skoðun Stöndum vörð um mannréttindi Margrét María Sigurðardóttir Skoðun „Enginn öruggur staður á netinu“ Unnur Ágústsdóttir,Halldóra R. Guðmundsdóttir Skoðun Jöfn tækifæri fyrir börn í borginni Stein Olav Romslo Skoðun Konur sem þögðu, kynslóð sem aldrei fékk sviðið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Reynsla úr heimi endurhæfingar nýtist víðar Svana Helen Björnsdóttir Skoðun
Tómstundafræðingar gegn varðhaldsbúðum Andrea Rói Sigurbjörns,Ása Kristín Einarsdóttir,Elí Hörpu- og Önundarbur,Maríanna Wathne Kristjánsdóttir,Valgeir Þór Jakobsson,Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir Skoðun
Tómstundafræðingar gegn varðhaldsbúðum Andrea Rói Sigurbjörns,Ása Kristín Einarsdóttir,Elí Hörpu- og Önundarbur,Maríanna Wathne Kristjánsdóttir,Valgeir Þór Jakobsson,Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir Skoðun