Íslandsmeistararnir kylfingar ársins 2016

Ólafía Þórunn og Birgir Leifur urðu Íslandsmeistarar í ár og létu auk þess að sér kveða utan landssteinanna.
Ólafía Þórunn náði t.a.m. þeim frábæra árangri að komast inn á LPGA-mótaröðina, sterkustu atvinnumótaröðina í golfi. Hún lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í byrjun þessa mánaðar.
Ólafía Þórunn lék einnig á LET-mótaröðinni, Evrópumótaröð kvenna, á árinu. Hún endaði í 96. sæti á stigalistanum í lok tímabilsins. Besti árangur hennar var 16. sæti í Tékklandi.
Ólafía Þórunn varð Íslandsmeistari í þriðja sinn á Jaðarsvelli á Akureyri í júlí. Þar skrifaði hún nýjan kafla í golfsöguna með því að vera á besta samanlagða skorinu af öllum keppendum Íslandsmótsins. Ólafía lék á -11 samtals og Valdís Þóra Jónsdóttir var á -10 samtals.
Birgir Leifur varð Íslandsmeistari í sjöunda sinn á árinu. Hann bætti þar með met sem hann deildi með Björgvini Þorsteinssyni og Úlfari Jónssyni.
Birgir Leifur lék einnig á Áskorendamótaröðinni í Evrópu í ár. Skagamaðurinn lék á níu mótum í ár. Hann endaði í 96. sæti á stigalistanum á Áskorendamótaröðinni. Besti árangur hans á þessu tímabili var 6. sæti.
Tengdar fréttir

LPGA-tímabilið hjá Ólafíu hefst á Bahamaeyjum
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í golfi, sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í dag fyrst allra íslenskra kvenna.

Ólafía Þórunn kom út í mínus
Þó svo Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hafi endað í öðru sæti á lokaúrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðina í gær, og fengið hálfa milljón króna í verðlaunafé, kemur hún út í mínus eftir þátttöku sína.

Íslendingar fagna: Ólafía Þórunn flækir valið á Íþróttamanni ársins
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur farið á kostum undanfarna fimm daga og brætt hjörtu Íslendinga sem eru að farast úr stolti.

Sögulegt afrek: Ólafía Þórunn fór á kostum og tryggði sæti sitt í LPGA-mótaröðinni
Kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR varð í dag fyrsti íslenski kylfingurinn sem kemst inn á sterkustu atvinnumannamótaröð heima í golfi er hún hafnaði í 2. sæti á lokastigi úrtökumótsins í Flórída.

Ólafía Þórunn: Er ennþá að ná áttum en tilfinningin er ótrúleg
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var að vonum í skýjunum eftir að hafa tryggt sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni fyrst allra íslenskra kylfinga í Flórída í dag.

Karen: Mikill munur á Evrópumótaröðinni og LPGA
"Þetta er rosalegur árangur og ég er ekki hissa á því að hún skildi fara alla leið,“ segir Karen Sævarsdóttir golfsérfræðingur um Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem endurskrifaði íslenska golfsögu í gær.

Nærmynd af Ólafíu: Pabbi grét þegar afrekið var í höfn
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, sem vann sér inn þátttökurétt á bandarísku atvinnumannamótaröðinni í golfi nú um helgina er sögð vera sveimhugi utan golfvallarins, afburða námsmaður og lúmskur húmoristi

Ólafía auglýsti Arctic Open í viðtölum við erlenda fjölmiðla
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var ekki aðeins í viðtölum við íslenska fjölmiðla eftir frábæra frammistöðu hennar á lokaúrtökumótinu fyrir LGPA-mótaröðina.

Tilfinningarík ræða Ólafíu hafði mikil áhrif á hennar nánustu vini og fjölskyldu
GR bauð til veislu í Grafarholti í kvöld til heiðurs Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur sem tryggði sér með eftirminnilegum hætti keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð í heimi um síðustu helgi. Golfsamband segir frá kvöldinu á heimasíði sinni.

Ólafía hættir á Evrópumótaröðinni: Á leið í aðgerð
Mun líklega hætta við að reyna að komast í gegnum úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í golfi.

Forseti GSÍ um kostnaðinn hjá Ólafíu: „Hún þarf á meiri stuðningi að halda“
Það verður dýrt fyrir Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur að keppa á bandarísku atvinnumótaröðinni á næsta ári.

Maður þarf að vera ótrúlega sterkur
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut blað í íslenskri íþróttasögu þegar hún tryggði sér sæti á LPGA-mótaröðinni í golfi í gær. Ólafía Þórunn lenti í 2. sæti á lokaúrtökumótinu fyrir mótaröðina og var hársbreidd frá sigri. Hún leggur mikið upp úr andlegum undirbúningi.

Fjögur ný mót og verðlaunafé aldrei meira
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mun fá tækifæri til að keppa um háar fjárhæðir á LPGA-mótaröðinni.

Ólafía Þórunn: Get alveg spilað jafn vel og þær bestu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir var í skýjunum með að vera komin á LPGA-mótaröðina.

Ólafía hafnaði í öðru sæti og tryggði sér þátttökurétt á LPGA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingur úr GR, hafnaði í öðru sæti á úrtökumótinu fyrir LPGA-mótaröðinna sem lauk rétt í þessu en með því tryggði hún sér þátttökurétt á þessari sterkustu atvinnumannamótaröð kvenna í heiminum á næsta ári.

Ólafía Þórunn og Júlían íþróttafólk Reykjavíkur 2016
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, og Júlían J.K. Jóhannsson úr Glímufélaginu Ármanni eru íþróttafólk Reykjavíkur árið 2016 en valið var kunngjört í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í dag.

Stelpan sem vann Ólafíu var að vinna í annað sinn | Sjáðu sigurpúttið
Jaye Marie Green rúllaði upp úrtökumótinu fyrir þremur árum er hún spilaði á 29 undir pari.

Ólafía Þórunn: Hélt mér frá Facebook
Segir að hún hafi lært dýrmæta lexíu eftir að hafa leitt framan af á sterku móti í Abú Dabí.

Næsta markmið er að vinna mót á LPGA
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur ekki enn komist í gegnum helminginn af þeim heillaóskum og skilaboðum sem hún fékk eftir að hún tryggði sér þátttökurétt á LPGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, þeirri sterkustu í heimi.

Ólafía tekur þátt í úrtökumótaröðinni fyrir Evrópumótaröðina
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, kylfingurinn úr GR, hefur ekki lokið leik á þessu ári en hún verður meðal þátttakenda í úrtökumóti fyrir LET-mótaröðina í Marakkó síðar í mánuðinum.

Birgir Leifur Íslandsmeistari í sjöunda sinn | Nú sá sigursælasti frá upphafi
Birgir Leifur Hafþórsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð í dag Íslandsmeistari í golfi í sjöunda skipti á ferlinum og setti þar með nýtt met en Íslandsmótið í ár fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri.

Ragnhildur um árangur Ólafíu: Spáir flóðbylgju af ungum nýjum kylfingum
Ragnhildur Sigurðardóttir ræddi við Arnar Björnsson um afrek Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur í kvöldfréttum Stöðvar tvö. Ólafía Þórunn tryggði sér eins og kunnugt er þátttökurétt á sterkustu mótaröð í heimi, LPGA-mótaröðinni.

Ólafía Þórunn í kringum 120. sæti forgangslistans
Sé mið tekið af síðasta keppnistímabili ætti Ólafía Þórunn að komast á 18-22 mót á næsta keppnistímabili.

Tóku víkingaklappið til heiðurs Ólafíu þegar sætið var í höfn | Myndband
Ólafía var vel studd af íslenskum ferðamönnum í Flórída en íslensku stuðningsmennirnir buðu upp á víkingaklapp þegar sætið var í höfn.