Heimilið er elegant og ber þess merki að hér býr mikill fagurkeri sem kann að meta vandaða hluti og má sjá gott safn af fallegri list, hönnun, antík og plöntum sem skapar notalega stemmingu. Harpa var þá í óðaönn að leggja lokahönd á förðunarbókina Andlit sem kom út fyrir jólin og við mælum með í jólapakkann.
Segðu okkur aðeins frá sjálfri þér. Ég er 29 ára gömul sminka. Bý með Daníel kærastanum mínum og Kötlu dóttur okkar. Ég er skólastjóri í Mood make-up school ásamt því að starfa sem sminka í auglýsingum.
Geturðu lýst þér í nokkrum orðum? Með mikið jafnaðargeð, metnaðarfull, dýrka vinnuna mína, elska að elda, hef ekkert á móti einu vínglasi við og við.
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum? Léttur, yfirvegaður en notalegur. Mér finnst yfirleitt skemmtilegustu heimilin þar sem er blanda af alls konar stílum.
Hvað er það besta við starfið þitt? Það sem mér þykir best við starfið mitt er að ég ræð að miklu leyti hvernig vinnu-tíminn er hjá mér og nánast enginn dagur er eins.
Hvað er íbúðin stór? 120 fermetrar.
Hvað hafið þið fjölskyldan búið hér lengi og hafið þið gert mikið fyrir íbúðina? Við erum búin að búa hérna í þrjá mán-uði. Já, við einfaldlega tókum allt í gegn. Undirvinnan tók mjög langan tíma. Síðan máluðum við, settum ný gólfefni, nýja skápa, nýtt eldhús og nýtt bað-herbergi. Tíu mánuðum seinna gátum við svo loksins flutt inn.

Fékkstu aðstoð innanhússhönnuðar við breytingarnar? Nei, foreldrar mínir urðu einhvers konar álitsgjafar hjá okkur og það var alveg ómetanlegt að eiga þau að í þessum framkvæmdum. Svo var mikið hringt í vinkonurnar á kvöldin og farið yfir málin.
Hvað finnst þér mikilvægast að huga að þegar þú innréttar heimilið þitt? Hversu mikil not ég hef fyrir hlutina og hversu mikið þeir gleðja augað. Ég læt það yfirleitt ekki hafa áhrif á mig að ég sé með eina tveggja ára sem er eins og atvinnumaður í að skíta allt út heldur skelli ég bara hvíta áklæðinu af sófanum í þvottavélina á þriggja vikna fresti með bros á vör.

Hvaðan sækir þú helst innblástur? Af netinu og úr tímaritum. Uppáhaldstímaritið mitt er RUM.
Safnar þú einhverju? Já, ég safna matarstelli.
Hvar er hjarta heimilisins? Í eldhúsinu, við elskum bæði að elda.
Hvað er það besta við heimilið? Andinn í íbúðinni. Það er einhver stemning þarna og mér finnst alltaf gaman að vera heima. Kannski það sé mikla lofthæðin og útsýnið.
Hvað er á óskalistanum inn á heimilið? Alvöru pottasett.
Er einhver einn hlutur þér kærastur? Ég held mikið upp á Andy Warhol pósterinn sem ég er með uppi á vegg, það sem gerir hann enn skemmtilegri er að hann er áritaður af honum sjálfum. En eldavélin mín fylgir fast á hæla honum.
Hvað er á döfinni hjá þér? Í dag er ég á fullu að skrifa make-up bók sem kemur út fyrir jól. Virkilega krefjandi en spennandi verkefni og ég er svo heppin að vera að vinna þetta með frábæru fólki. En annars gengur lífið bara sinn vanagang, Mood skólinn og svona frílans verkefni í bland.





