Íslenski boltinn

Grétar Sigfinnur í Þrótt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Grétar í leik gegn KR í sumar.
Grétar í leik gegn KR í sumar. vísir/vilhelm
Grétar Sigfinnur Sigurðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Þrótt sem féll úr Pepsi-deild karla í haust. Þetta kom fram á Fótbolta.net.

Grétar á langan feril að baki og hefur spilað með KR, Víkingi og Val en var á mála hjá Stjörnunni á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði í sautján leikjum og skoraði eitt mark. Hann er 34 ára gamall.

Þróttur féll ásamt Fylki úr Pepsi-deildinni í haust en Gregg Ryder mun áfram þjálfa liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×