Örlítið minni diskant, takk Friðrika Benónýsdóttir skrifar 18. nóvember 2016 11:00
Bækur Netið Lilja Sigurðardóttir Útgefandi: JPV-útgáfa 2016 Fjöldi síðna: 353 Í bókaflóðinu í fyrra var Gildran eftir Lilju Sigurðardóttir eitt það hressilegasta sem rak á fjörur. Þar var sleginn nýr tónn í íslenskri spennusagnagerð, bókin var öskrandi aksjónkrimmi með vel dregnum persónum og slungnu plotti sem gladdi glæpasagnafíkla með nýjum sjónarhornum á íslenskan veruleika. Netið er þráðbeint framhald Gildrunnar og hér eru persónur þær sömu, þótt örfáar bætist í hópinn, og aksjónin ef eitthvað er enn meiri og flóknari. Sonja, aðalpersónan, er enn föst í neti alþjóðlegs eiturlyfjahrings og ástkona hennar, Agla, stendur enn í flóknum fjármálagjörningum sem hvorki þola dagsljósið né rannsókn sérstaks saksóknara. Bragi tollvörður hugsar enn um deyjandi konu sína og Adam, fyrrverandi eiginmaður Sonju, notar enn Tómas son þeirra sem keyri á hana til að fara að vilja hans. Allt gott og blessað, svo langt sem það nær. Styrkur Gildrunnar liggur fyrst og fremst í næmri persónusköpun og væntumþykju höfundar gagnvart persónum sínum, en í Netinu er eins og sú væntumþykja hafi dvínað. Allt þetta siðblinda fólk verður ósköp eintóna og þreytandi á þessum 353 síðum og lesandinn finnur ekki til nokkurrar samúðar með þeim, er slétt sama um afdrif þeirra og áhyggjur og því dettur botninn úr spennunni. Æsileg og ótrúverðug atburðarásin bætir ekki úr skák og þótt leikurinn berist víða um lönd, frá Íslandi til Grænlands og Mexíkó með viðkomu í stórborgum Evrópu, kviknar áhugi lesandans ekki. Maður stendur sig næstum því að því að dæsa mæðulega og segja stundarhátt; nei hættu nú alveg, þetta gengur engan veginn upp. Þau viðbrögð eru væntanlega ekki það sem höfundar spennusagna sækjast eftir að ná fram hjá lesendum sínum. Íslenskir glæpasagnahöfundar eru í „mikilli sókn“ á erlendum mörkuðum og skiljanlega er útgáfa erlendis eftirsóknarverð og gleðileg fyrir höfunda sem skrifa á þessu örtungumáli sem enginn skilur. Það er hins vegar verra ef sú hugsun að skrifa fyrir alþjóðlegan markað tekur ráðin af höfundum og þeir gleyma því að það sem gerir nordic noir áhugavert og spennandi fyrir lesendur annarra landa er sérstaðan og hin sálfræðilega næmni sem margir af bestu norrænu glæpasagnahöfundum eru þekktir fyrir. Netið er skrifað beint inn í bandaríska aksjónþrillerahefð og það kemur vægast sagt ekki nógu vel út þegar bakgrunnurinn er íslenskur veruleiki. Þá verður útkoman bara enn einn þrillerinn sem geysist um heim alþjóðlegra eiturlyfjahringa og hvítflibbaglæpamanna án þess að bæta neinu við lýsingar á þeim heimum í öðrum sams konar sögum. Þegar ofan á bætist að persónurnar sem höfundur Gildrunnar lagði svo mikla alúð við að gæða lífi og lit eru orðnar útflattar og líflausar er útkoman harla rýr í roðinu og skilur lesandann eftir með hálfgert óbragð í munni.Niðurstaða: Æsilegur aksjónþriller með ótrúlegri atburðarás en dauflega dregnum persónum og yfirdrifnu plotti.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 18. nóvember.
Bókmenntir Menning Mest lesið Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Lífið „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Lífið Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker Lífið Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum Lífið Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Lífið Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Lífið Dóttir Obama í íslenskri hönnun Tíska og hönnun Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Lífið Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Lífið Fleiri fréttir John Grant tók Eldborg með áhlaupi — en hjartað vann stríðið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira