Golf

Ólafía ísköld í eyðimörkinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur spilað frábært golf í Abú Dabí en hún hitti 17 af 18 flötum á öðrum degi og fékk sjö fugla.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur spilað frábært golf í Abú Dabí en hún hitti 17 af 18 flötum á öðrum degi og fékk sjö fugla. vísir/let
„Þetta var skemmtilegur dagur. Ég var að slá ótrúlega vel og koma mér í færi sem ég náði svo að nýta mér,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR og ríkjandi Íslandsmeistari í höggleik, eftir frábæran annan hring á sterku móti í Abú Dabí sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna.

Ólafía Þórunn fer á kostum í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en eftir að fara fyrsta hringinn á 65 höggum eða sjö höggum undir pari spilaði hún annan hring í gær á 66 höggum eða sex höggum undir pari. Hún er í heildina búin að fá fimmtán fugla á fyrstu 36 holunum og er í forystu í mótinu eftir fyrri tvo keppnisdagana á þrettán höggum undir pari. Hún er með þriggja högga forskot fyrir helgina.

Ólafía Þórunn hitti 17 af 18 flötum sem er náttúrlega magnað og var því í ágætu færi nánast á hverri einustu holu.

„Þessi völlur hentar mér vel. Ég elska þessar flatir. Ég kom mér líka í færi sem ég hefði getað nýtt betur. Þetta var samt alveg geggjaður dagur,“ sagði Ólafía Þórunn sem spilaði nánast fullkomið golf á Saad­iyat-golfvellinum í Abú Dabí í gær.

Síminn að springa

Þessi 24 ára gamli tvöfaldi Íslandsmeistari sýndi enga taugaspennu á öðrum hring þrátt fyrir að vera í forystunni eftir þann fyrsta.

„Það er ég sem ræð því hvort þetta hefur áhrif á mig eða ekki. Ég gerði allt bara eins og á fyrsta hringnum og bætti engri pressu á mig,“ sagði Ólafía Þórunn en hún segist ekki finna fyrir neinum taugatitringi úti á vellinum þrátt fyrir að vera að spila við sumar af þeim bestu.

„Í rauninni var ekkert stress í mér og það kom kannski aðeins á óvart. Það var bara svo gaman í gær því allir á Íslandi voru svo glaðir fyrir mína hönd. Síminn var að springa af skilaboðum. Ég þarf bara að vera róleg núna og vonandi tekst mér það,“ sagði Ólafía Þórunn.

Milljónir í boði

Fari svo að Reykvíkingurinn haldi áfram að spila svona vel og vinni mótið fær hún 9,1 milljón króna í sigurlaun. Takist það mun hún ellefufalda heildarverðlaunafð sitt í Evrópumótaröðinni til þessa og rúmlega það. Ólafía hefur þrisvar sinnum fengið verðlaunafé fyrir þátttöku á LET-mótaröðinni og eru heildartekjurnar 790.000 krónur.

Minnst fékk Ólafía 200.000 krónur fyrir að hafna í 44. sæti á móti í Andalúsíu en mest fékk hún ríflega hálfa milljón þegar hún náði 16. sæti á Tipsport Golf-meistaramótinu.

„Þetta er alveg frábært. Ég er ekkert taugaóstyrk heldur reyni ég bara að halda mér í núinu og spila vel. Vonandi get ég haldið svona áfram,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×