Innlent

Ráðherra segir ekki óeðlilegt að skipa aðstoðarmann ef hann er eins og Sunna

Þorgeir Helgason skrifar
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ásamt Sunnu Gunnars Marteinsdóttur, aðstoðarkonu sinni.
Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ásamt Sunnu Gunnars Marteinsdóttur, aðstoðarkonu sinni. Mynd af Facebook-síðu Framsóknarflokksins
„Það er einfaldlega þannig að það er ráðherra sem að skipar í stjórnina. Ég taldi rétt að gera þessar breytingar, fá inn fólk með aðra nálgun og sýn en það fólk sem áður sat í stjórninni. Án þess að það sé neitt að því fólki. Það er ágætt að breyta til,“ segir Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um þá ákvörðun sína að skipta um þrjá stjórnarmenn í Matís, aðeins ellefu dögum fyrir kosningar.

Sunna Gunnars Marteinsdóttir, aðstoðarmaður Gunnars Braga til síðustu þriggja ára.
Gunnar Bragi segir eina ástæðu mannabreytinganna þá að hann hafi viljað laga kynjahlutföll í stjórninni. Meðal nýrra stjórnarmanna í Matís er Sunna Gunnars Marteinsdóttir, sem hefur starfað sem aðstoðarmaður Gunnars Braga í rúm þrjú ár, og er mágkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins.

„Það er alls ekkert óeðlilegt að skipa aðstoðarmann sinn í stjórn félags ef viðkomandi er eins og Sunna. Hún er vel menntuð, með góða reynslu af stjórnsýslunni, erlendum samskiptum og hinu og þessu,“ segir Gunnar Bragi um ráðninguna.

Ásamt Sunnu var Viggó Jónsson einnig skipaður í stjórnina. Hann hefur setið í sveitarstjórn Skagafjarðar fyrir hönd Framsóknarflokksins síðan árið 2010 en hann á einnig sæti sem varamaður í stjórn Kaupfélags Skagafjarðar.

Spurður út í skipun Viggós segir Gunnar Bragi hann vel hæfan.

„Hann er einhvers konar rafmagnsfræðingur, minnir mig. Auk þess hefur hann mikla reynslu af atvinnuþróun og af atvinnulífinu.“


Tengdar fréttir

Gunnar Bragi skipaði aðstoðarmann sinn í stjórn hjá Matís

Aðstoðarmaður ráðherra og sveitarstjórnarfulltrúi Framsóknar í Skagafirði skipaðir í stjórn Matís. Þremur tilkynnt kvöldið fyrir aðalfund að þeim yrði vikið úr stjórn. Mágkona Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar er meðal hinna nýj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×