Skoraði næstum því jafnmörg mörk með landsliðinu og með Blikum í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. október 2016 16:30 Fanndís Friðriksdóttir. Mynd/KSÍ/Hilmar Þór
Fanndís Friðriksdóttir var á skotskónum með íslenska kvennalandsliðinu á árinu 2016 en sigurmark Fanndísar á móti Úsbekistan í dag var hennar fimmta landsliðsmark á árinu 2016. Hér fyrir ofan og neðan má sjá myndir sem Hilmar Þór Guðmundsson Norðfjörð, fjölmiðlafulltrúi íslenska kvennalandsliðsins, tók af Fanndísi í leiknum á móti Úsbekistan í dag. Fanndís hafði einnig skorað í 2-2 jafntefli á móti Kína og var því markahæsti leikmaður íslenska landsliðsins á á Sincere Cup æfingamótinu í Chonqing í Kína. Fanndís Friðriksdóttir var markadrottning Pepsi-deildar kvenna sumarið 2015 með 19 mörk í 18 leikjum en henni gekk ekki eins vel að skora í Pepsi-deildinni í ár. Fanndís var þá með 6 mörk í 18 leikjum. Það munaði því bara einu marki að Fanndís næði að skora jafnmörg deildarmörk fyrir Blika og mörk fyrir íslenska landsliðið á árinu. Fanndís lék 12 landsleiki á árinu 2016 og skoraði í þeim 5 mörk. Hún hafði mest áður skorað þrjú mörk á einu landsári og er samanlagt með 10 mörk í 76 landsleikjum. Fanndís skoraði þó fleiri mörk með Blikum en þessi mörk í Pepsi-deildinni því hún var einnig með tvö mörk í bikarkeppninni og tvö mörk í Evrópukeppninni.Mynd/KSÍ/Hilmar ÞórMynd/KSÍ/Hilmar ÞórMynd/KSÍ/Hilmar ÞórMynd/KSÍ/Hilmar ÞórMynd/KSÍ/Hilmar ÞórMynd/KSÍ/Hilmar Þór
Fótbolti Íslenski boltinn Mest lesið Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Fótbolti „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Íslenski boltinn „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann Fótbolti Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Fótbolti Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Íslenski boltinn Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga Íslenski boltinn Bætti heimsmet í míluhlaupi sem hafði staðið í 27 ár Sport Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur Fótbolti Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Íslenski boltinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Golf Fleiri fréttir Saka með þrennu í ótrúlegum bronsleik Finnur til með leikmönnum: „Síðustu mánuðir verið erfiðir“ „Ég er bara í brjáluðu skapi“ Uppgjörið: Valur - Fram 2-3 | Framarar upp í annað sætið Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda Vildi fá Nyland fyrir HM: „Það verður ansi erfitt að fá hann núna“ Uppgjörið: Þór - Víkingur 2-1 | Þórsarar fyrstir til að vinna Víkinga „Þurfum að læra að stýra spennustiginu á milli verkefna“ „Eina leiðin er upp“ Fjórtán ára í byrjunarliði Vals Fékk sigur í fimmtugsafmælisgjöf Topplið Lengjudeildarinnar fær liðsstyrk frá Stjörnunni Annar þrjú núll sigur hjá strákunum hans Freys Stórsigur á Seltjarnarnesi en markalaust í Grindavík Viktor Nói lánaður til Njarðvíkur Taylor fagnar ákaft: „Sjáið hvað hún er reið, alveg brjáluð“ Martínez sleppti aðgerð og spilar meiddur „Sturlað“ að mæta Yamal eftir að hafa baðað hann „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Sjá meira