Innlent

Yfir fimmtán hundruð bjóða sig fram til Alþingis og setja nýtt met

Þorgeir Helgason skrifar
Frambjóðendur til alþingiskosninga eru 1.534 talsins.
Frambjóðendur til alþingiskosninga eru 1.534 talsins. Vísir/Stefán
Alþingiskosningarnar 29. október verða þær fjórðu á rúmum níu árum. Frestur til að skila framboðslistum til kosninga til Alþingis rennur út klukkan 12 á hádegi þann 14. október.

Stjórnmálahreyfingar sem hafa ekki fengið skráðan listabókstaf þurfa að tilkynna framboð sitt eigi síðar en klukkan 12 á hádegi þann 11. október.

Þrettán stjórnmálaflokkar hafa boðað framboð til alþingiskosninganna, tólf í öllum kjördæmum. Aðeins einu sinni hafa fleiri stjórnmálaflokkar boðið fram en það var árið 2013 þegar fimmtán hreyfingar voru í framboði. Alls eru 1.534 í framboði í komandi kosningum sem er mestur fjöldi frambjóðenda í sögu kosninga hérlendis en árið 2013 buðu 1.512 fram krafta sína til setu á Alþingi.

Til þess að framboð teljist gilt þarf tilskilinn fjölda meðmælenda. Í hverju kjördæmi þarf hver listi 30 til 40 yfirlýsta stuðningsmenn fyrir hvert þingsæti. Björt framtíð, Framsóknarflokkurinn, Viðreisn, Sjálfstæðisflokkurinn, Íslenska þjóðfylkingin, Flokkur fólksins, Lýðræðisflokkurinn, Framfaraflokkurinn, Píratar, Alþýðufylkingin, Samfylkingin, Dögun og Vinstrihreyfingin – grænt framboð stefna á að bjóða fram í öllum kjördæmum meðan Húmanistaflokkurinn býður fram í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Framfaraflokkurinn sem auglýsti framboð í síðustu viku og hélt stofnfund um síðustu helgi er hættur við.

„Ég er búinn að slá þetta af, tíminn hljóp frá okkur. Það var ekki raunhæft að þetta næðist í tæka tíð,“ segir Þormar Jónsson, forsvarsmaður Framfaraflokksins.

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru 246.515 kjósendur á kjörskrá. Takist öllum framboðum að afla tilskilins fjölda stuðningsmanna verða þeir á bilinu 23.010 til 30.680, sem er á bilinu níu til tólf prósent kjósenda.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×