Anna og Abida Hildur Björnsdóttir skrifar 23. september 2016 07:00 Hún heitir Abida og er tíu ára. Tólf tíma á dag starfar hún í morkinni verksmiðju í Bangladess. Aðbúnaðurinn hörmulegur og launin varla nokkur. Hún er fórnarlamb barnaþrælkunar. Tími hennar er ódýr. Barnaþrælkun er raunverulegt vandamál. Árið 2012 var talið að um 170 milljónir barna lifðu við vinnuþrælkun. Þannig hefðu börnin ekki náð aldri til að stunda vinnu og aðbúnaður og aðstæður þeirra væru oft hræðilegar. Barnaþrælkun á sér margar birtingarmyndir. Ein þeirra er framleiðsla á tískuvarningi. Hún heitir Anna og er tíu ára. Hún æfir fótbolta og stundar fiðlunám í Reykjavík. Mamma hennar kom nýlega að utan með bílfarma af nýjum spjörum. Þær voru nefnilega svo ódýrar. Það er margt við nútímaneyslu sem vekur umhugsun. Ódýr fatnaður er sjaldan endingargóður og eykur því á fjölmörg vandamál tengd ofneyslu í heiminum. Flestir velja magn umfram gæði og leita varnings í lægstu verðflokkum. Fæstir hugleiða hvers vegna varningurinn reynist pyngjunni svo umburðarlyndur. Fyrir hverja ódýra flík má oft finna einhvern sem þjáist aftarlega í fæðukeðjunni. Fyrir hvert íslenskt barn sem á sömu flíkina í öllum litum má oft finna erlent barn sem þjáðist við framleiðsluna. Anna á ekki eingöngu bílfarma af fötum. Hún á líka eftirlíkingu af fótboltaskóm sem hún keypti á kínverskri vefsíðu. Svo á hún snjallsíma. Það er mjög sennilegt að barn eins og Abida hafi þjáðst við framleiðslu á eignum hinnar tíu ára Önnu. Finnst okkur það bara allt í lagi?Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hildur Björnsdóttir Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Segðu bara nei við sölumanninn Egill Gautason Skoðun Sagan endurtekur sig Daði Már Kristófersson Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga Skoðun