Börsungur meiddist í afturendanum í svefni Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. september 2016 12:30 Douglas í einum af sárafáum leikjum sínum fyrir Barcelona. vísir/getty
Brasilíski varnarmaðurinn Douglas, sem er á láni hjá Sporting Gíjon frá Barcelona, meiddist í svefni á miðvikudaginn eftir tap Sporting gegn Celta Vigo. Douglas ferðaðist með Sporting til Vigo en var ekki í leikmannahópnum. Þessi 26 ára gamli Brassi samdi við Barcelona fyrir tveimur árum en spilaði aðeins tvo deildarleiki fyrir Katalóníuliðið og var nú sendur á lán. Bakvörðurinn fékk sér kríu í rútunni á heimleiðinni en svaf í svo óþægilegri líkamsstöðu að hann meiddist í rassvöðva. Þetta staðfesti Gerardo Ruiz, þjálfari Sporting Gíjon, á blaðamannafundi í dag. Meiðslin eru ekki alvarleg. Douglas gat ekki æft í gær en hann verður með á æfingu í dag og er búist við að hann verði í leikmannahópnum gegn Barcelona í spænsku 1. deildinni á morgun. Douglas komst til metorða hjá Sao Paulo í Brasilíu þar sem hann spilaði 125 leiki á þremur tímabilum og vann meðal annars Suður-Ameríkukeppni félagsliða. Ferill hans hjá Barcelona hefur aldrei komist af stað.
Spænski boltinn Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Handbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Það er ekki flugeldasýning í hverjum leik“ Sport Uppgjörið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Fleiri fréttir Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Sjá meira