Lárus Orri tekur aftur við Þór og Kristján Örn verður spilandi aðstoðarþjálfari Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. september 2016 18:12 Þór. mynd/þór
Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari Inkasso-liðs Þórs í fótbolta en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Kristján Örn, bróðir Lárusar, verður aðstoðarþjálfari og stefnt er að því að hann spili með Þórsliðinu næsta sumar. Lárus Orri þekkir vel til hjá Þór en hann spilaði með liðinu áður en hann fór út í atvinnumennsku. Þá var hann þjálfari liðsins í 1. deildinni frá 2006-2010 en tókst aldrei að koma liðinu upp. Þessi fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður þjálfaði KF frá 2011-2013 eftir að hann hætti hjá Þór. Hann á að baki 42 A-landsleiki fyrir Íslands en hann er 43 ára gamall. Kristján Örn Sigurðsson ólst upp hjá Þór eins og bróðir sinn en spilaði með Völsungi og KA áður en hann hélt út í atvinnumennsku. Þá var hann í meistaraliði KR árið 2003 en Kristján Örn varð einnig noregsmeistari með Brann árið 2007. Kristján Örn lagði skóna á hilluna fyrir tveimur árum en ætlar nú að rífa þá fram aftur og reyna að spila með Þórsliðinu á næstu leiktíð. Þór féll úr Pepsi-deildinni 2014. Þá tók Halldór Jón Sigurðsson, Donni, við starfinu af Páli Viðari Gíslasyni. Donni stýrði liðinu í fyrra og í sumar en tókst ekki að koma liðinu upp í Pepsi-deildina á ný. Hann lét svo af störfum fyrir lokaumferðina.
Íslenski boltinn Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Fleiri fréttir Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Umfjöllun: Þór - Stjarnan 1-3 | Lífsnauðsynlegur sigur Garðbæinga „Ákvað að kontra hann í samúel“ Gerði sínu gamla liði mikinn grikk Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings