Rosberg: Lewis var bara fljótari í dag Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 3. september 2016 15:00 Þrír fljótustu menn dagsins. Vísir/Getty
Lewis Hamilton náði sínum fimmta ráspól á Ítalíu sem er jöfnun á meti Ayrton Senna og Juan Manuel Fangio. Ráspóllinn er jafnframt 56. ráspóll Hamilton á ferlinum. „Það sem við sem lið höfum afrekað er ótrúlegt. Það er magnað að vera í slagtogi með Ayrton Senna, ég hélt það myndi aldrei gerast. Flati bletturinn á dekkinu er ekki mikið áhyggjuefni á morgun,“ sagði Hamilton eftir tímatökuna. „Lewis var bara fljótari í dag. Ég átti fullkomna helgi hingað til en svo tókst mér ekki að slá honum við,“ sagði Nico Rosberg sem varð annar í dag. „Ég var að reyna allt í síðustu beygjunni og fór aðeins of vítt. Það er frábært að sjá stuðninginn sem við erum að fá hér. Það fjölgar bara ár frá ári,“ sagði Sebastian Vettel sem varð þriðji á Ferrari eftir að hafa hoppað upp fyrir liðsfélaga sinn, Kimi Raikkonen í síðustu tilraun. „Það var góð tilfinning að komast í þriðju lotu tímatökunnar. Þetta var alls ekki mjúkur og auðveldur hringur. Við viljum nú reyna að sýna þennan hraða í keppninni líka,“ sagði Esteban Gutierrez sem varð 10. á Haas „Ég var búinn að spá þessu. Við eurm þar sem við bjuggumst við að vera. Valtteri var einum þúsundasta á undan mér. Kannski fékk hann sér einni sneið minna af pítsu í gær. En svona er þessi kappakstur,“ sagði Daniel Ricciardo á Red Bull. Hann ræsir sjötti á morgun. „Þetta var besti hringur helgarinnar fyrir mig. Ég naut þess að aka hann. Ég tók kæliopin af hjálminum og sagði við þjálfarann minn að þetta myndi gera mig einum þúsundasta fljótari og það varð niðurstaðan,“ sagði Valtteri Bottas sem varð fimmti í dag á Williams bílnum. „Williams bíll Valtteri verður markmiðið okkar á morgun. Það er rétt, ég verð áfram hjá liðinu á næsta ári. Ég er mjög kátur hérna,“ sagði Sergio Perez sem varð áttundi á Force India bílnum. Liðið staðfesti áframhaldandi veru hans í þeirra herbúðum á næsta ári rétt fyrir tímatökuna.
Formúla Tengdar fréttir Mercedes fljótastir á æfingum á Ítalíu Mercedes menn voru fljótastir á báðum æfingum dagsins fyrir ítalska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni og Lewis Hamilton þeirri seinni. 2. september 2016 17:45 Felipe Massa hættir í Formúlu 1 Williams ökumaðurinn Felipe Massa hefur tilkynnt að hann muni hætta í Formúlu 1 þegar núverandi tímabili lýkur. 1. september 2016 22:00 Villeneuve: FIA virðist vernda Max Verstsappen Fyrrum heimsmeistarinn Jacques Villeneuve telur dómara í Formúlu 1 veita Max Verstappen meira svigrúm en öðrum. Hann telur að FIA líti út eins og þeir séu að vernda ungstirnið. 31. ágúst 2016 15:30 Lewis Hamilton á ráspól á Ítalíu Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir ítalska kappakstrinn sem fer fram á morgun. Þetta var fimmti ráspóll Hamilton á Ítalíu. Nico Roserg var annar á Mercedes og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji. 3. september 2016 12:57 Mest lesið Kemur dómaranefnd til varnar og hnýtir í Jón og tvíburana Körfubolti Segir Liverpool ekki spila eins og topplið: Spila körfubolta en ekki fótbolta Enski boltinn Sjáðu kinnhestinn sem felldi Liverpool og þrennu Mbappe Fótbolti Kaupa einn frægasta leikvang heims til þess að rífa hann Fótbolti Áhrif NFL á ensku úrvalsdeildina: „Eins og heill leikur af föstum leikatriðum“ Enski boltinn Vilja ekki að merki þeirra sé á búningum Ísraelsliðsins Fótbolti Svaf í tuttugu tíma á dag eftir slysið Sport Aftur tapar Liverpool Fótbolti „Síðan koma raddir um að þetta sé ekkert svo alvarlegt“ Íslenski boltinn Fékk óvart rautt spjald Enski boltinn Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira
Mercedes fljótastir á æfingum á Ítalíu Mercedes menn voru fljótastir á báðum æfingum dagsins fyrir ítalska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni og Lewis Hamilton þeirri seinni. 2. september 2016 17:45
Felipe Massa hættir í Formúlu 1 Williams ökumaðurinn Felipe Massa hefur tilkynnt að hann muni hætta í Formúlu 1 þegar núverandi tímabili lýkur. 1. september 2016 22:00
Villeneuve: FIA virðist vernda Max Verstsappen Fyrrum heimsmeistarinn Jacques Villeneuve telur dómara í Formúlu 1 veita Max Verstappen meira svigrúm en öðrum. Hann telur að FIA líti út eins og þeir séu að vernda ungstirnið. 31. ágúst 2016 15:30
Lewis Hamilton á ráspól á Ítalíu Lewis Hamilton á Mercedes náði ráspól fyrir ítalska kappakstrinn sem fer fram á morgun. Þetta var fimmti ráspóll Hamilton á Ítalíu. Nico Roserg var annar á Mercedes og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji. 3. september 2016 12:57