Íslenski boltinn

Mikilvægur sigur Fram | Myndir

Anton Ingi Leifsson skrifar
Fram náði í mikilvæg stig í kvöld.
Fram náði í mikilvæg stig í kvöld. vísir/hanna
Fram vann mikilvægan sigur í botnbaráttu Inkasso-deild karla, en þeir unnu 2-0 sigur á Huginn í kvöld.

Hanna K.Andrésdóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á Laugardalsvellinum í kvöld og tók meðfylgjandi myndir.

Leikið var á heimavelli Fram, Laugardalsvelli, en staðan var markalaus þegar Gunnar Jarl Jónsson, dómari leiksins, flautaði til hálfleiks.

Fyrsta markið lét bíða eftir sér og það var ekki fyrr en á 77. mínútu sem Dino Gavric kom Fram yfir, en það var svo varamaðurinn Indriði Áki Þorláksson sem tvöfaldaði forystuna í uppbótartíma og lokatölur 2-0.

Fram færist því nær miðri deildinni, en þeir eru í sjöunda sæti með nítján stig. Huginn er hins vegar í ellefta sætinu með þrettán stig, stigi frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×